8.10.2007 | 10:33
Bónus gerir þetta líka!
Það eru ekki bara norski matvörumarkaðurinn sem gerir þetta því ég hef lent í því í tvígang að minnast á það í Bónusbúð að kjöt sem ég keypti í annað skiptið og morgunkorn í hinu tilvikinu,hafi verið vont. Ég var samstundis rifinn inn á skrifstofu til verslunarstjóra, eitthvað prentað út og varan endurgreidd á kassa. Í kjöt tilfellinu tók verslunarstjórinn upp símann að auki, hringdi í framleiðandann og viti menn, heim til mín um kvöldið kom maður og færði mér læri og helgarsteik í sárabætur. Þetta er sko þjónusta í lagi ekki satt. Svo bölva menn Bónusi !
![]() |
Matvaran endurgreidd þótt í magann sé komin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
tilfinningar
-
tolliagustar
-
lindalea
-
kisabella
-
siggasin
-
saxi
-
svavaralfred
-
ein
-
gisgis
-
totally
-
mofi
-
vilborgo
-
rebby
-
scorpio
-
gurrihar
-
erla1001
-
stormsker
-
aslaugh
-
jensgud
-
eggmann
-
blossom
-
gretaulfs
-
limran
-
malacai
-
arabina
-
toshiki
-
gurkan
-
gelin
-
asarich
-
kona
-
neytendatalsmadur
-
myndamen
-
brandarar
-
little-miss-silly
-
rose
-
hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ha ha ha hver helduru að trúi þér
Óskar Þorkelsson, 8.10.2007 kl. 10:50
Skondin frétt, virkar svona svooolítið eins og fyrsta-aprílgabb
Jónína Dúadóttir, 8.10.2007 kl. 12:50
hmmm, Óskar, því skildi ég skrökva þessu? Þetta er alveg satt.
Júdas (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 17:41
Af hverju ætti starfsfólk Bónusverslana ekki að geta komið vel fram ?
Jónína Dúadóttir, 9.10.2007 kl. 07:14
Las bloggið þitt frá byrjun. Frábært og óvanalegt af karlmanni að vera svo einlægur. Falleg samlíking á ástinni og árstíðum . . að hvort tveggja taki enda. Næst þegar að ég lendi í ástarsorg . . mun ég bara segja að það sé komið haust og ég ætli að njóta þess . . því ég elska haustið. Hlakka til að lesa þig dularfulli maður.
Kveðja Arna
Fiðrildi, 10.10.2007 kl. 13:14
Takk fyrir þetta Arna. Það kemur mér á óvart að einhver nenni að lesa vangaveltur mína. Ég veit ekki en held , að einlægni sé styrkur. Mér hefur fundist það í starfi mínu að auðvelt sé að snúa vörn í sókn með einlægni og opnum huga og það veldur mönnum jafnvel kinnroða. Mistök verða oft grunnur að lausnum og betri samskiptum til framtíðar. Takk aftur.
Júdas, 10.10.2007 kl. 18:30
Ekkert svona, það er verulega notalegt að lesa pistlana þína
Jónína Dúadóttir, 10.10.2007 kl. 21:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.