21.10.2007 | 23:45
Allt eða ekkert sagði sú fyrsta
Ligg einn uppi í sófa, búinn að sofa í tvo tíma. Eldaði kjúkling handa okkur feðgum fyrr í kvöld, hann farinn út með vinum sínum. Horfi á fólk elskast á sirkusi kannast eitthvað við þetta en get varla rifjað það upp. Man að mig langaði til að búa án konu en veit núna að mig langar til að búa með konu. Bara ekki sömu konunni. Langar í gott verður sól og blíðu en finn fyrir depurð og aðeins rigning getur fengið mig til að slaka á og líða betur. Átti mér drauma um konu og börn en staðreyndin er konur og börn. Allt eða ekkert sagði sú fyrsta, allt fyrir ekkert sagði svo önnur og allt verður ekkert sagði sú þriðja. Ég þarf aðeins að skreppa sagði sú fjórða í fíkn, og þá er það upp talið. Samt sakna ég góðu stundanna, bíð og vona, veit innst inni að þetta er einn stór hringur. Fallegu stundirnar koma aftur, haustið er hálfnað, veturinn ef til vill langur en svo kemur það sem ég bíð eftir. Á einum stað stendur: Legg mig sem innsiglishring við hjarta þér , sem innsiglishring við armlegg þinn. Því elskan er sterk eins og dauðinn, ástríðan hörð eins og hel. Blossar hennar eru eldblossar , logi hennar brennandi. Mikið vatn getur ekki slökkt elskuna og árstraumar ekki drekkt henni. Þótt einhver vildi gefa öll auðæfi húss síns fyrir elskuna þá mundu menn ekki gera annað en að fyrirlíta hann. Í hvílu minni um nótt leitaði ég hennar sem sál mín elskar, ég leitaði hennar en fann hana ekki. Líklega verður þetta bara að vera svona.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Upp, upp mín sál....
Jónína Dúadóttir, 22.10.2007 kl. 07:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.