16.12.2007 | 23:19
Þau gengu tvö að sá í sama akur
Við þráum og vonum en vökvum ekki og hlúum ekki að. Við æðum áfram opin fyrir öllu og náum ekki að njóta nokkurs að fullu því værðina vantar. Mér finnst þetta ljóð Hannesar Péturssonar svo grípandi og lýsandi fyrir mig sjálfan, marga í kringum mig og jafnvel marga hér í bloggheimum. Ef til vill á þetta við þig líka.
Þau gengu tvö að sá í sama akur
og sama vonin ríkti í hjörtum tveim.
Í djúpa mold þau dreifðu fræjum sínum
við dagslok báru tómar körfur heim.
Og ársæld létu í akur þeirra drjúpa
hin ilmi þungu dægur sumarlöng
með hlýja skúr og bjarta sól, uns blærinn
í bleikum, stórum öxum þeirra söng.
Þau gegnu ei framar út á þennan akur.
Svo undrafljótt og þó ei tregalaust
þau kvöddust þegar kominn var sá tími
að kornið mætti skera þetta haust.
Og akur þeirra beið uns varð hann vindum
og vertarfrosti og þungum snjó að bráð.
Þau fundu bæði á öðrum stöðum aðra
með öðrum var í nýjar moldir sáð.
Og fundum þeirra bar ei síðar saman.
En seinna löngu ef gerðist vinafátt
um langveg bar þau hugurinn að heiman
um hraun og fjöll og sitt úr hvorri átt.
Því nú var orðin gleði þeirra að gista
hinn gamla og næstum týnda akur sinn
og hlusta á vindinn hvísla lágt í grasi:
hérna bjó forðum allur draumur þinn.
Þessi akur gæti verið gamla Þorpið mitt, úti á landi þar sem draumar mínir voru mér innrættir og allt snérist um þá í áratugi. Allt í einu varð mér það ljóst að þeim var aldrei ætlað að rætast og síðar velti ég því fyrir mér hvort Júdas hefði kannski svikið sjálfan sig enn og aftur, drauma sína og þrár er hann flutti burt og fann sér nýja drauma, nýjar væntinga, nýjar þrár og nýja konu.........unga konu án fortíðar. Að snúa baki við skuggum fortíðar er ekkert mál, en gæti ég hafa snúði baki við skuggum framtíðar sem mér er svo tíðrætt um? Á ég eftir að mæta þeim tvíefldum og verður það gott eða slæmt?
Guð einn veit.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ljóðin hans Hannesar eru alltaf með hugblæ þess sem er fóstraður af þorpi og lifði sína fyrstu drauma þar.
Engin umgerð hæfir draumi betur en þorp.
Árni Gunnarsson, 16.12.2007 kl. 23:50
Ég lifði líka minn draum í þorpi og þar breyttist hann í martröð... en mér tókst fyrir rest að vakna upp af vonda draumnum..... Ég leyfi mér ekki lengur að láta mig dreyma... kannski þess vegna er ég bara verulega ánægð með lífið og tilveruna, hver veit ?
Jónína Dúadóttir, 17.12.2007 kl. 07:17
Gaman að fá comment frá þér Árni og ekki síst um ljóðið. Þótt hjá mér hafi vaknað mikill ljóðaáhugi þar sem hughrifin ráða för get ég ekki sagt að þekking á þeim sé til staðar og því gaman að fá svona comment.
Og þú elskan, Jónína, ég met þessa vináttu mikils því máttu trúa. Pistlarnir þínir eru svo blátt áfram og tilgerðarlausir að það er greinilegt að þú átt yndislega tilveru.
Júdas, 18.12.2007 kl. 10:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.