20.12.2007 | 09:22
Ef til vill fann Júdas leiðina
Nú andar næturblær um bláa voga.
Við bleikan himinn daprar stjörnur loga.
Og þar sem forðum vor í sefi söng
nú svífur vetrarnóttin dimm og löng.
Svo undarlega allir hlutir breytast.
Hver árin skipta svip og hjörtun þreytast.
Hve snemma daprast vorsins vígða bál.
Hve vínið dofnar ört á tímans skál.
Svo skamma stundu æskan okkur treindist.
Svo illa vorum draumum lífið reyndist.
Senn göngum við sem gestir um þá slóð,
sem geymir bernsku vorrar draumaljóð.
Og innan skamms við yfirgefum leikinn.
Ný æska gengur sigurdjörf og hreykin,
af sömu blekking blind, í okkar spor.
Og brátt er gleymt við áttum líka vor.
Og þannig skal um eilífð áfram haldið,
uns einhverntíma fellur hinsta tjaldið.
Tómas Guðm.
Þetta ljóð sat í mér eftir ljóðalestur gærkveldsins og ef til vill vegna hugsana sem sóttu á mig eftir heimsóknina í Þorpið. Ég keyrði þar um eins og vofa, þekkti engan og allsstaðar ný andlit, ný æska. Stöku sinnum finnst mér ég þó kannast við einhvern en hann var ábyggilega ekki gráhærður eða sköllóttur og alls ekki svona hokinn svo líklega fór ég mannavillt. Ég var ungur og þrek mitt óþrjótandi, glæstir draumar og ættarviðjar héldu í mig en þá mætti ég sjálfum mér, eða var það Júdas sem ég mætti? Hver veit.
Ilmur stórborgarinnar gagntók mig og spor mín um þorpið hurfu. Spor sem ég hélt að væru eilíf, spor sem ég hélt að yrðu fetuð af börnum mínum og komandi kynslóðum en ég hafði rangt fyrir mér eins og svo oft áður. Ef til vill hef ég þó rétt fyrir mér með það að spor stigin til framtíðar liggi um sálarfylgsni sona minna eftir ljúfar stundir og ljúfa sigra í smábardögum hversdagsleikans. Hver veit?
Ef til vill fann Júdas leiðina og hefur nú þegar lagt djúp spor sem ekki fennir yfir og ekki eru stigin til einskis. Spor stigin í átt til skugga framtíðar, spor til frelsis, spor til blessunar.
Njótið dagsins.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Öll þessi færsla er falleg og þú ert alveg á réttri leið, nema að einu leiti að því er mér finnst : Þó maður breyti til í lífinu, þá heitir það ekki endilega að svíkja... Stundum verðum við einfaldlega að viðurkenna vanmátt okkar gagnvart einhverju í lífinu, sem er ekki það sama og að gefast upp og fara einhverja aðra leið....sem er ekkert endilega verri
Speki dagsins er í boði Grýlu gömlu í Fjallakofanum
Jónína Dúadóttir, 20.12.2007 kl. 09:38
. . ég læri ótrúlega mikið af að hlusta á hana Jónínu.
Fiðrildi, 20.12.2007 kl. 23:07
Það er alltaf gott að fá smá speki en þetta segir orðabókin um svik:
það að svíkja, fals, undirferli, prettur, vélræði
búa yfir svikum hér eru svik í tafli
upp koma svik um síðir
2
• það að rjúfa orð sín, heit, samning
• festarslit, það að slíta trúlofun
3
• skáldamál
missýn, skynvilla
Ég hallst á númer tvö og þrjú...........þar liggja svikin................
Júdas, 20.12.2007 kl. 23:12
Og eru ekki allir búnir að fyrirgefa þér svikin.... nema þú sjálfur kannski ?
Jónína Dúadóttir, 21.12.2007 kl. 07:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.