27.12.2007 | 07:55
Þá er þessum ágætu dögum lokið
Þá er þessum ágætu dögum lokið. Dögum sem setja allt á annan endann og þótt menn tali um að jólum sé ekki lokið fyrr en á þrettándanum finnst mér allt þetta umstang snúast um þessa tvo eða þrjá daga og þrátt fyrir áramótastemmninguna er hún einhvernvegin miklu afslappaðri á allan hátt. Jólin fóru vel fram hjá okkur, síðasta skúringarstrokan var tekin um kl 15, og gamli sófinn borinn út rétt áður. Unga konan mætti um hádegi og matseldin komin á fullt ekki löngu seinna. Unglingurinn var ekki í neinu sérstöku jólaskapi enda coolið ofar öllu og varla hefur það verið til að auka það að hann fékk símhringingu eftir hádegi því móðir hans hafði gleymt að senda honum jólapakkana frá henni og hennar fólki svo ekki var von á þeim fyrr en eftir jól. Ja hérna, og við erum bara að tala um Þorp úti á landi. Vinurinn tók því bara vel að því er virtist en hver veit hvað leynist í sálarfylgsnunum. Pabbi kútur var með varaleiðir í þessu eins og öllu öðru svo litlum pökkum frá kútnum og fleirum bættust í pakkastaflann undir trénu. Annars er unglingskúturinn svo þroskaður í mörgu og nokkrum vikum fyrir jól nefndi hann það við mig að við feðgar ættum bara að sleppa öllu gjafaveseni, hann væri soldið blankur og honum fyndist að við ættum bara að njóta matarins og þess að vera saman og svo væri það alveg gefið að litli kútur þyrfti hjálp okkar við að opna alla þá pakka sem hann fengi og hefði varla orku í að opna. Auðvitað keypti ég jólagjöf handa honum og það virtist koma honum á óvart en fyrr um daginn hafði einhver ónefndur laumað að honum gjöf sem hann gat pakkað inn handa pabba sínum. Ótrúlegt hvað hlutirnir geta gengið upp.
Eina vandamálið sem fylgdi þessum dögum var svona daginn eftir vandamál, en þá birtist unga konan aftur og erfitt þegar líða tók á daginn að verða einn aftur. Margir hlutir rifjuðust upp fyrir mér og alveg borðliggjandi að einstæður faðir er ég og mun verða, allavega svo langt sem ég sé. En það tókst á endanum.
Nú liggur þyngra á mér en margt annað hvort ég ætti ekki án þess að særa nokkurn að vera einn á gamlárskveldinu með unglingnum mínum og ef til vill kútnum ef okkur ungu konunni semst um það. Við tekur hversdagsleiki, örlítið tómlegur en fegurð og birta undan genginnar snjókomu gæti lyft þessu upp.
Njótið dagsins.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fínir dagar, en ég er með það á hreinu að jólin eru alls ekki búin, í dag er sko þriðji í jólum Ég hef alltaf haft það fyrir sið að vera heima í rólegheitum á gamlárskvöld, þekki ekkert annað. Undantekning núna, ég er að vinna á gamlárskvöld frá klukkan 17 til 21 og líst bara vel á það
Gangi þér vel í dag
Jónína Dúadóttir, 27.12.2007 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.