27.12.2007 | 23:13
Gott kvöld gamli maður
Þetta ljóð er búið að vera ofarlega í huga mínum undanfarið, því mér finnst tíminn líða svo hratt. Innra með mér er alltaf sama barnið eða ungi maðurinn í grunninn en í farteskinu er þroski og reynsla undanfarinna ára. Ekki grunaði mig það hér áður þegar ég horfði á eldra fólk að innra með því væri jafnvel barn, óháð tíma og rúmi.
Ég var lítið barn
og ég lék mér við ströndina.
Tveir dökkklæddir menn
gengu fram hjá
og heilsuðu:
Góðan dag, litla barn,
góðan dag.
Ég var lítið barn
og ég lék mér við ströndina.
Tvær ljóshærðar stúlkur
gegnu fram hjá
og hvísluðu.
Komdu með ungi maður,
komdu með.
Ég var lítið barn
og ég lék mér við ströndina.
Tvö hlæjandi börn
gengu fram hjá
og kölluðu.
Gott kvöld, gamli maður,
gott kvöld.
Steinn Steinarr
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér finnst þetta ljóð vera snilld.... það segir allt í örfáum orðum..... Var samt að verða búin að fá æluna upp í háls af því að hlusta lagið fyrir jólin... Þegar ég er að vinna keyri ég á milli staða á 1/2-2 tíma fresti og kveiki þá á útvarpinu í bílnum og ég get svo svarið það, að það voru margir dagar í röð, þar sem þetta lag var það eina sem ég fékk að heyra.... En textinn stendur samt alltaf fyrir sínu
Jónína Dúadóttir, 28.12.2007 kl. 07:18
það má nú öllu ofgera. Ég man eftir laginu en finnst ljóðið fallegra eitt og sér. Það byrjar öll erindin á "Ég var lítið barn" sem er eitthvað svo satt og rétt í þessu.
Júdas, 28.12.2007 kl. 21:38
Ég les og les ........ Þetta er auðvitað landsþekkt - var á mínu æskuheimili á 45 snún.plötu með Kristínu Ólafsdóttur. Við vorum tvö sem sungum þetta við undirspil - upptaka til á símanum mínum, ég segi ekki alveg ölum til ómældrar ánægju . Ekki undirspilaranum sem þykist ekkert kunna en er snillingur samt.
Anna, 27.3.2008 kl. 08:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.