25.2.2008 | 23:25
Breið blæju húms
Mér líður óvenju vel og þarf ekki annað en að líta til hægri og virða fyrir mér lítinn yndislegan kút, hold mitt og blóð, liggjandi í sófanum dreymandi fiðrildi og kanínur og þar er skýringin fundin. Hjarta mitt tekur auka slag og kökkur kemur í hálsinn. Þakklæti fyllir hjarta mitt að ég, Júdas skuli fá að njóta samvista við þennan kút og ég þakka það hvern dag góðum Guði.
Unglingskúturinn kom inn í stofu áðan og saman dáðumst við að þeim litla. Sá eldir faldi ekki tilfinningar sínar og áður en hann þaut út fékk ég faðmlag og lítið elska þig pabbisjáumst .
Sjálfur er ég að þreytast, búinn að vera í lestri laga og rétta svo réttast væri að láta undan.
Svefns hjarta sært
saknar um næturstund.
Tungl, skin þitt skært
skamman því leyfir blund.
Djúps nýtur drótt
draumhöfga allt um kring.
Lát höfði hljótt
hallað á skýjabing.
Náttröðull, rúms
runninn um langan stig,
breið blæju húms
blástirnda yfir þig.
Þorst.Vald
**Góða nótt vinir!**
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já góða nótt. klikkar heldur ekki með kvöldsopanum ....
múmínstelpan (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 23:38
Mikið er notalegt að lesa... bæði þín orð og svo ljóðið
Vona að nóttin hafi veitt þér hvíld og notalega drauma og dagurinn í dag verði sá besti hingað til
Jónína Dúadóttir, 26.2.2008 kl. 05:47
Þú ert fallegur :)
Nilla (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 09:25
Góðan daginn og takk fyrir falleg comment yndislegu vinir. Þau gleðja mig þótt ég skilji ekki til fulls af hverju þeim er beint til mín en ég er jú aðeins að blogga um venjulega feðga og með fljóta falleg ljóð. Takk samt
Júdas, 27.2.2008 kl. 08:08
Góðan daginn elskulegur, þú skilur þetta þegar þú verður stór
Jónína Dúadóttir, 27.2.2008 kl. 08:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.