16.3.2008 | 09:46
Kvöldið bíður í grípandi dulúð
Þvílík fegurð.
Þótt þessi morgunn sé ekki eins bjartur og í gær er hún björt sólin sem rennur upp milli rifja og lýsir upp þreytt hjarta gamals manns.
Þessi sól klifraði reyndar upp á gamla manninn í morgun hossaði sér og vildi fara fram. Svo kom faðmlag og slefblautur koss. Við feðgar sváfum óvenju lengi og fórum ekki fram fyrr en hálf átta en sá gamli var búinn að vita af sér í klukku tíma eða svo.
Við heltum okkur í eldamennsku klukkan átta í gærkveldi með tilheyrandi látum og kúturinn tók fullan þátt í því enda um einn af uppáhaldsréttum kútsins að ræða. Unglingurinn stóð við eldavélina og skipaði gamla fyrir eins og herforingi og síðan settumst við allir að snæðingi. Unglingskútur er búinn að vera óvenju mikið með okkur þessa helgi, fór út með okkur kút í gær og var með okkur í þrjá klukkutíma. Sagðist vera þreyttur á vinum sínum og svo var kærastan auðvitað að vinna en hann ætlaði að hitta hana seinna um kvöldið.
Framundan er bjartur og fallegur dagur en kvöldið bíður í grípandi dulúð. Þá mun ég mæta fortíðinni í húsi fortíðar og nútíðar. Hvort skuggar framtíðar láti sjá sig skal ég ekki segja en líklegt er að skuggar fortíðar láti til sín taka.
Í skjóli skugga bíður
sól og morgunstund.
Í takti tímans líður
tók sér lítinn blund.
Í bljúgir værð ég bíð
og bið um vin.
Fortíð,nútíð, framtíð!
fagurt skin.
J.I
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heill og sæll. Gleður mig að sjá frumsamin ljóð dag eftir dag Dettur annars í hug þegar ég les þetta "gamli" hjá þér. Hvað í ósköpunum er Júdas gamall? Virkar einhvernveginn alls ekki gamall á mig - þrátt fyrir að vera (að eigin sögn) sérlundaður
Óla Maja (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 23:01
"í skjóli skugga
bíður sól"
...... skemmtileg myndlíking alltaf gott að trúa að birti.
...með bestu kveðju þó ég þekki ekki höfund þessa bloggs
Guðný Bjarna, 16.3.2008 kl. 23:54
Ég skrifaði athugasemd hérna í gær en hún hefur ekki komist til skila ! Hún var dvona : Fallegt
Njóttu dagsins, gamli maður
Jónína Dúadóttir, 17.3.2008 kl. 08:00
....Svona.... átti þetta nú að vera !
Jónína Dúadóttir, 17.3.2008 kl. 08:01
Júdas telst á besta aldri en hefur verið "gamall" frá því hann var tvítugur. Veit ekki af hverju. Veit ekki heldur hvort þessi leirburður á heima hérna.
Að þekkja höfundinn......það þekkir hann enginn en hann er samt það sem hann bloggar.
Jónína mín, njóttu líka.
Júdas, 17.3.2008 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.