20.3.2008 | 08:50
Ég er strax farinn að sakna ykkar
Hann vaknaði veikur kúturinn minn í gær, hitinn rúmar 39° en var samt ótrúlega sprækur. Það var líka eitthvað furðulegt við þetta því í staðin fyrir að stökkva með mér á fætur eða jafnvel á undan mér eins og undanfarið vildi hann lúra lengur. Unglingskúturinn lagðist svo hjá honum og við mældum hann og jú, hiti var það. Ég hringdi í mömmu hans, leikskólann og vinnuna og kom mér vel fyrir í sófanum með honum því heima yrðum við í dag. Það var ljóst.
Í gærkveldi pakkaði svo Unglingskútur niður í tösku og beið eftir að verða sóttur því hann ætlar að vera í Þorpinu um páskana. Það tókst ekki vel síðast en ómögulegt að segja um það hvað hann tollir lengi núna. Skylduræknin gagnvart móður sinni segir meira til sín heldur en hún gerði þegar hann var yngri og allaf ætlar hann að vera í nokkra daga en það þykir kraftaverk ef næturnar verða tvær. Hann leit inn í stofu á okkur sem lágum í sófanum og sagðist strax vera farinn að sakna okkar. Það er ekki góð byrjun á skemmtiferð eða hvað?
Við vöknuðum því einir í hreiðrinu í morgun en gamli maðurinn svolítið á undan litla kút. Ég náði að fara í sturtu, hella upp á og lesa blöðin áður en vinurinn rak upp vein og upplifði sig einan og yfirgefinn. Hann var þó kominn í fangið á kútapabbanum augnabliki síðar. Unga konan ætlar að koma og vera hjá honum í dag svo ég geti unnið upp gærdaginn en kúturinn á eftir einn dag hjá mér. Á föstudagskvöldið tekur svo við mömmuvika svo Júdas verður einn í hreiðrinu um páskana.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Unglingurinn lítur sjálfsagt ekki á þetta sem skemmtiferð, en þetta er nú mamma sko.... Ekkert einfalt þar á ferð, sama og hjá mínum börnum, fara til pabba af því að það er jú pabbi manns.... Æi börnin okkar þessar elskur
Gangi þér allt vel í dag
Jónína Dúadóttir, 20.3.2008 kl. 09:36
Díta (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 20:12
Ég held að mamma hans sé konan sem ég hef ekki bloggað um eða hvað?
Dita, velkomin aftur, ertu enn á föstu?
Júdas, 22.3.2008 kl. 22:00
..bank bank
múminstelpan (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 15:46
........nennir þú að þegja með mér múmínstelpa .............................þú ert meiri ráðgáta en ég!
Júdas, 23.3.2008 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.