23.6.2008 | 17:48
Vopnaður eyrnapinnum
Við vöknuðum ferskir að morgni á fallegum sólardegi á Rimini. Minn auðvitað á undan eins og gerist á fróni, skrúfaði frá gasinu og setti espresso könnuna yfir. Nettengingar hafa eitthvað verið að stríða okkur feðgum og í raun það eina sem hefur verið að því í ferðinni, reyndar eftir að sá gamli skreið um allan húsbíl vopnaður eyrnapinna.....................rétt heyrt....eyrnapinna og matarolíu við að ískurlosa bílinn. Lamir á skápum og skúffum, borðum og hurðum svo hægt sé að ganga um hann ofur snemma án þess að vekja aðra húsbílaíbúa svo ég tali nú ekki um kútinn sem fer seinna að sofa en pabbinn og liggur aðeins lengur á morgnanna. Við látum þetta ekki á okkur fá því við höfum átt svo sæla daga í ferðinni í grenjandi rigningu, sjóðheitu sólskini, næðings kulda, hlýjum andvara, öskrandi roki og öllu þar á milli. Keyrt yfir fjöll og firnindi, malarvegi og hraðbrautir, sveitir og borgir.
Á meðan kúturinn þreif baðherbergið og eldhúsið fór ég með óhreina þvottinn og setti í eina vél og skoðaði svo netsambandsmöguleika umhverfisins og komst að því að eigendur svæðisins voru heldur betur að lofa upp í ermarnar á sér því eini staðurinn sem ég fann var lítil verönd með tveimur bekkjum og þar rakst ég einmitt á tölvusjúkan túrista sem sá hvað ég var að gera með símanum mínum og tókum við tal. Hann sagðist hafa skoðað þetta í gær og komist að þessari sömu niðurstöðu. Við feðgar ákváðum að vera léttklæddir í dag, rölta á ströndina og njóta sólarinnar sem við og gerðum. Við ákváðum að dvelja aðra nótt á Rimini og keyra til Feneyja að morgni. Kúturinn vill auðvitað sjá þessar sökkvandi eyjar en er samt spenntari fyrir Milanó og segist vilja dvelja stutt í Feneyjum og keyra strax til Milanó. Hann ræður auðvitað enda ferðin skipulögð af honum og ég sagði honum að það eina sem ég þyrfti væri kaffisopi á Markúsartorgi en þar hef ég áður verið og finnst þessi staður yndislegur og einskonar vagga evópskrar kaffimenningar þótt flestir séu þarna út af annarskonar menningu og listum.
Við heyrðum aðeins í litla kút í gær og söknum hans ógurlega. Þvílíkur vaðall. Hann talaði og talaði og malaði og malaði (syngist). Orðaforðinn alltaf að aukast en hann er ekki alveg að skilja að það er aðeins í 3G kerfinu sem hægt er að segja sjáðu og sýna manni eitthvað sem hann er að teikna á meðan hann talar við mann. Hann fattar það að ári þegar símafyrirtækin ryðjast inn á smábarnamarkaðinn. Jæja, það eru nú ekki nema fjórtán ár þangað til ég tek hann í svona tveggja feðga ferð, eða kannski fyrr og þá förum við allir þrír...................líklega bara.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
tilfinningar
-
tolliagustar
-
lindalea
-
kisabella
-
siggasin
-
saxi
-
svavaralfred
-
ein
-
gisgis
-
totally
-
mofi
-
vilborgo
-
rebby
-
scorpio
-
gurrihar
-
erla1001
-
stormsker
-
aslaugh
-
jensgud
-
eggmann
-
blossom
-
gretaulfs
-
limran
-
malacai
-
arabina
-
toshiki
-
gurkan
-
gelin
-
asarich
-
kona
-
neytendatalsmadur
-
myndamen
-
brandarar
-
little-miss-silly
-
rose
-
hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábær ferð eins og við mátti búast og bara svona okkar á milli : ég öfunda ykkur ógurlega
Eigið ljúfan dag og ég bið að heilsa Feneyjum
Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 06:33
Takk Jónína mín. Ég er nú búinn að sakna ykkar talsvert en vegna óvæntra vandræða með búnaðinn gat ég ekkert verið í sambandi. Núna koma hinsvegar pistlarnir einn af öðrum
Júdas, 24.6.2008 kl. 07:50
Greinilega heillandi ferðamáti og dásamlegt líf eins og ítalskan átti að segja
hér við fyrsta ferðapistilinn. Hafið það áfram skemmtilegt 
Anna, 24.6.2008 kl. 08:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.