23.5.2009 | 08:49
Gömul færsla endurvakin
Ég datt í leit minni að gleði niður á gamla færslu sem gaf mér von en um leið sá ég að tilvera hans er dýpri í dag en hún var þá. Engu að síður er fjölskyldan stærri og sterkari, heimilið hamingjuríkara og hlýrra, stuðningurinn meiri, vonin sterkari og bænirnar heitari.
Síminn hringdi og dapur eldri kútur var á línunni. Depurðin og svartsýnin var algjör, pabbi, hvað er að mér? Af hverju get ég ekki verið glaður eins og þú? Gamli maðurinn skellti aftur tölvunni, farinn og spólaði út í umferðina. Nokkrum mínútum síðar sátum við kútafeðgar við eldhúsborðið og skeggræddum allar hliðar lífsins. Baráttuna, tilganginn, myrkrið, ljósið, dagrenninguna og hjálpina sem væri alltaf innan handar. Við sátum þarna við borðið í nærri tvo tíma og á eftir var ekki að sjá annað en að dökkur drunginn væri á bak og burt og gleðin og vonin væri tekin við. Þessi vinur er bara spegilmynd pabba síns. Samviskan stór og þung en ljós hans á öllum vegum og það ekki af tilviljun. Hann var reiður við sig og ósáttur, fannst hann gera alla hluti rangt, fannst hann lofa sér þessu og hinu en ekki standa við það, setti sér takmörk en færi ekki eftir þeim, alltaf að svíkja sig, alltaf að svíkja eigin loforð og það sem hann gerði rétt gerði hann ekki nógu vel. Af hverju er ég svona pabbi? Af hverju er ég ekki eins og þú? Veistu það vinur-Þú ert eins og ég? Meira að segja allt of líkur mér. Það er bara lítill Júdas í okkur öllum sem gerir okkur mannleg og það er þess vegna sem við þurfum á Honum að halda og stuðningi hvors annars! Við megum bara aldrei gefast upp og verðum að muna eftir því að rifja upp góðu stundirnar þegar illa viðrar, og stefna á þær aftur. Í miðju samtalinu sagði þessi yndislegi, hjartahlýi vinur: Ég vildi að það færi að rigna!! og ég gat ekki annað en hlegið................Það er alltaf svo gott að tala við þig pabbi, þú ert algjör sálfræðingur.
Hann ljómaði í gær og hann ljómaði í morgun. Drunginn yfirstaðinn, gleðin og vonin allsráðandi. Það verður ekki dregið í efa að litli Júdas líkist þeim stóra, hugsar mikið, veltir hlutunum mikið fyrir sér og telur sig alltaf geta gert betur. Þeir sem þekkja Júdas af blogglestri gætu talið það Akkilesarhæl kútsins að líkjast föður sínum en sjálfur veit ég að sú sterka samviska sem okkur var blásin í brjóst og trúin á Guð sé það ljós sem lýsir okkur daga og nætur, í gleði og sorg, í von og vonleysi og leiðir okkur til þeirrar værðar sem við leitum.
Hvort litli kútur sé þessum hæfileikum gæddur er of snemmt að segja til um en flest í fari hans minnir mig á þann eldri þegar hann var á sama aldri. Ef til vill verður hann gjörólíkur okkur og búið að sníða af honum helstu galla eldri árgerða og það gæti verið þakkarvert. Við treystum Almættinu í þeim málum.
Dagurinn er fallegur og verður það hvernig sem viðrar. Við ráðum ekki veðrinu en við getum haft áhrif á þá storma sem blása hið innra svo njótið dagsins.
Það er mér framandi að finna fyrir tárum en þessi færsla kallaði fram tár sem ég gat þó ekki skilgreint.
Gleði.............sorg
Við ætlum okkur að sameinast og sigra.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég sem þykist þekkja þig nokkuð vel eftir að hafa lesið öll bloggin sem þú hefur skrifað hérna, tel af og frá að það sé Akkilesarhæll að líkjast þér... algerlega þvert á móti ! Mikið er ég ánægð að ykkur skuli líða vel
Jónína Dúadóttir, 23.5.2009 kl. 15:22
Dásamleg færsla .Takk fyrir ad deila henni med mér.
Kvedja frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 26.5.2009 kl. 06:09
það er ekki nauðsynlegt að skilgreina tár...þau er eitt af þessum fyrirbærum sem maðurinn hefur.... til að leitast við að hreinsa til í sálinni.... njóttu þeirra !
bomsan, 8.6.2009 kl. 01:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.