Svik við hvern?

Ég er að reyna að vera duglegur að koma þankagang mínum á bloggið en gengur það ekki vel.  Mér finnst sumt ekki eiga heima hérna en því skildi ég hugsa þannig?  Það les þetta hvort sem er ekki nokkur maður sem betur fer því það veit enginn af þessu.  Ég hef sagt einni einustu manneskju frá því að ég sé farinn að blogga en vildi ekki segja henni slóðina eða hvaða nick ég notaði.   Ég notaði þetta nick í mörg ár, fyrir mörgum árum þegar ég flokkaðist undir það að vera Irkari á upphafsárum þess.  Líklega vegna „ákveðinnar“ nafnleyndar eða dulúðar sem því fylgdi að vera irkari.  Mér fannst líka þá og finnst enn ég hafa svikið sjálfan mig í svo mörgu og í raun aldrei talið mig nema miðlungsmann í öllu.  Ekki góðan í neinu og reyndar ekki lélegan í mörgu heldur en hver vill ekki tróna svolítið í einhverju.  Ég vil reyndar fullyrða að ég sé góður faðir og hef oft fengið að heyra það en ef ég gref dýpra er ég hreint ekki viss um það.  Er allavega ekki vondur faðir, það er alveg ljóst.   Ég skil ekki af hverju ég er alltaf svona væminn þegar ég fer inn á bloggið en í upphafi ætlaði ég að commenta grimmt  á atburði líðandi tíma en einhvern veginn er bara þessi tími í lífi mínu og líðan að væmnin er yfirsterkari og því verður þetta bara að vera svona þar til næsta tímabil tekur við.  Ég veit að það verður kvenfyrirlitningar tímabilið en það stendur stutt og endar vafalaust með því að einhver kona leggDoorur fyrir mig snöru og heillar mig upp úr skónum.  Sennilega verður snaran að vera lögð við innganginn á húsinu mínu eða inni í forstofu, jafnvel í leikskólanum því ég fer ekki víða utan vinnu.   Ég reikna ekki með því að verða húkkaður í Laugum í svona sterku ljósi með alla þessa yfirborðsgæðinga í fremri sætunum. Þegar ég fer yfir listann yfir þá sem koma á hurðina hjá mér og inn í forstofu er listinn ekki langur og aðeins 15 % af honum af gagnstæðu kyni.   Pitsusendlar, fólk sem fer húsavillt, vottar jehova, blaðberar, „ má ég lesa af rafmagninu hjá þér“  fólk,  pakkasendlar,  og svo auðvitað félagar eldri stráksins, jú og barnsmóðir mín.  Þetta er ekki álitlegur listi fyrir utan barnsmóðurina sem lendir í „kemur ekki til greina aftur“ flokknum þótt ljúf sé.  Ég örvænti þó alls ekki,  kann vel við einsemdina sem er ekki algjör með drengina mína tvo hjá mér.

  Ég er heima í dag vegna hita, beinverkja ofl, en það gerist ekki nema einu sinni á ári og vil ég frekar kalla það aumingjaskap en veikindi.  Ég efast alltaf um það að ég sé raunverulega veikur þá sjaldan að þetta gerist þótt hitamælirinn sýni tvær gráður yfir 37, held að það sé verri kostur að vera heima með samviskubit en fara bara í vinnu og harka af sér. Það jákvæða við daginn er rigningin og rigningarspáin fyrir helgina.   Ekkert betra og ljúfara fyrir sálartetrið en rigning,  rigningarhljóð og værðin sem færist yfir allt.  Ég þarf að vera duglegur um helgina að læra og hlusta á fyrirlestra en er samt að vinna svo ég verð að gera það á kvöldin yfir kaffibolla, litli kúturinn kominn til mömmu sinnar í viku og sá eldri spilandi tónlist úr tölvunni, lokaður inni í herbergi og bassinn í botni.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það er gott að geta gagnrýnt sjálfan sig, en passaðu þig samt að verða ekki of óvæginn. Það er svo margt annað í lífinu sem getur brotið mann niður, við þurfum oftast að sjá um að byggja okkur upp

Jónína Dúadóttir, 5.10.2007 kl. 11:43

2 Smámynd: Júdas

Takk fyrir þetta Jónína mín..........

Júdas, 5.10.2007 kl. 12:01

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Verulega góðar myndir sem þú tekur, áttu fleiri ?

Jónína Dúadóttir, 6.10.2007 kl. 14:16

4 identicon

Ég var áhugaljósmyndari á gagnfræðaárum mínum og tók mikið af myndum þá.  Í dag tek ég aðallega myndir af drengjunum mínum og keypti mér miðlungsgóða, flata myndavél en ekki dýra linsuvél til að ég tæki hana frekar með mér hvert sem ég fer.  Hurðamyndina á ég ekki og má víst ekki tileinka mér Dalí heldur. En takk fyrir hólið á amatörmennskunni  .

júdas (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 14:32

5 Smámynd: Fiðrildi

 . . pabbarnir sem koma í leikskólann eru þeir flottustu af öllum.  Kannski er einhver mamman þar stök

Fiðrildi, 10.10.2007 kl. 14:29

6 Smámynd: Júdas

  ég sé þær en er eitthvað svo mikil gunga þessa dagana.  Ég óttast það að vekja elsku áður en hún sjálf vill og særa bara sjálfan mig og aðra.

En......vonandi nefnir einhver þeirra ljúfan kaffibolla við mig áður en veturinn er allur.

Júdas, 12.10.2007 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 48672

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband