Stattu þig Júdas

     Í mér er einhver prófskrekkur í dag, eða tilfinningin er þannig.  Eins og manni líður klukkutíma fyrir próf og maður veit að það verður engu við bætt og allur tíminn ætti að fara í slökun og hugarfarslegan undirbúning.  En undirbúning undir hvað?  Ég er búinn að taka þau próf sem ég þarf að taka fyrir áramót og þótt á mér hvíli nokkur verkefni tengd vinnunni eru þau þess eðlis að prófskrekkstilfinning á ekki við.  Ég er á heimavelli þar.  Jólin, nei þau eru ekki prófraun, þau líða hjá, já vinnan sér fyrir því.  Ég er á gati þótt ég viti það innst inni.  Það er bara tilfinningin sem er að stríða mér.  Ég leit í spegilinn í morgun og var ekki eins kátur með mig og í gær.  Getur það verið að spegilmyndir eldist hraðar, ég meina hefur einhver getað afsannað það ?  Ég vil nú ekki taka það stórt upp í mig að ég líti út eins og borðtuska með tennur en getur verið að öldruð móðir mín sé ekki dómbær á þetta þegar hún segir að ég sé yndislegur og gullfallegur?  Yndislegur fylgir bara því hún hefur ekki þann hæfileika að lesa hugsanir og hefur greinilega ekki séð allt myndbandið en gullfallegur fær mig til að efast.  Sjónin er kannski verri hjá henni en ég reiknaði með. 

    Jæja, gullfallegur dagur í vændum reikna ég með en ég finn að æfingar undanfarinna daga hafa tekið sinn toll hjá gamla manninum.  Kaffibollar morgunsins eru farnir að tikka inn svo þetta gæti lagast.  Ef til vill er fallhlutfallið ekki svo hátt en það er klárlega próftökurétturinn sem vefst fyrir mönnum.  

Stattu þig Júdas!   Betur en spegilmyndin!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mamma þín er skynsöm kona, með augu sem sjá þig eins og þú ert. Trúðu henni, þú veist alveg að hún hefur oftar en ekki rétt fyrir sér ! Og trúðu mér þegar ég segi að spegilmyndin eldist miklu hraðar en við... á morgnana  Borðtuska með tennur !!!!! Æðislegt !!! Má ég nota þetta, á eina sem ég þoli ekki.... ?

Jónína Dúadóttir, 21.11.2007 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 48664

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband