Íþróttamaður í fjölskyldunni?

     Það var kalt þegar ég kom fram í morgun, búinn að heyra í vindinum úti í klukkutíma eða svo og því var hrollur í mér.  Ég fór varlega framúr, setti á könnuna og hafragraut í pottinn áður en ég stökk í sturtu.  Það var galsi í kútnum í gærkveldi svo ég vonaði að hann gæti sofið lengur.  Það voru allar aðferðir reyndar til að koma honum niður en við enduðum uppi í sófa þar sem hann setti án efa íslandsmet í 400 metra brölti í 6 sæta hornsófa bæði með og án atrenu sem verður að teljast nokkuð gott.  Pabbi hans og bróðir voru jú ekki atkvæðamiklir í íþóttum hér áður svo þarna var ef til vill komin ljósglæta íþóttamannsins í fjölskyldunni.   Ég settist með kaffibollann en ég þarf alltaf að hita mig aðeins upp áður en ég fer í hafragrautinn, kveikti á tölvunni og handlék morgunblöðin.  Nokkru síðar vakti ég unglinginn og ekki löngu seinna barst neyðarhróp úr svefnherberginu þar sem „konungsborinn“ kúturinn vildi láta sækja sig og halda á sér fram.  Ég er ótrúlega lunkinn við að vafra um fréttavefina, fletta dagblöðum, borða hafragraut og drekka kaffi með kútinn hangandi utan á mér en líklega telst það ekki til sérstöðu svo þar bankar meðalmennskan tíðrædda upp á.  Það stefnir í fallegan dag þótt ég viti ekkert um veður annað en vinda svo er á meðan er.

Eigið góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér finnst þú vera hetja að geta gert þetta allt með íþróttaálfinn á herðunum, þetta er ekkert á færi neinna meðaljóna

Jónína Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 08:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 48614

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband