Loforð fuku

      Þá er ég loksins kominn heim, og þvílík sæla.  Það er ekki slæmt að koma heim eftir að unglingurinn hafði verið einn heima í nærri tvo sólarhringa og íbúðin fullkomin.  Það féll niður flug í þorpið í allan dag og ég tók þá ákvörðun nógu snemma að bíða ekki heldur leigja mér bíl og bruna heim.   Brjálað rok,  geðveik hálka en það var ljúft.  Vera á leiðinni heim og geta talað við sjálfan sig og almættið í rúma sex klukkutíma.  Ekki slæmt það og niðurstaða fékkst, loforð fuku og staðfestingar einnig.     Getur verið að skugga framtíðar hafi brugðið fyrir? 

     Kom á hárréttum tíma í bæinn til að sækja kútinn minn í leikskólann og hann hljóp upp um hálsinn á mér og bablaði á kútísku heilu setningarnar en ég náði bara orðunum pabbi og bói.  Fórum því næst að sækja stóra bróður sem vildi fara beint að borða og versla því hann sagðist ekkert hafa borðað frá því ég fór.  Fengum okkur taco og versluðum svo í ísskápinn.

     Nú er kúturinn sofnaður, unglingurinn horfinn á öldur veraldarvefsins og ég gamli maðurinn sestur inn í eldhús, búinn að deyfa ljósin, kanilkaffi á leiðinni og vantar ekkert nema þá kaffifélaga........   Tók með mér úr búðinni áðan vænan blómvönd svona til að hressa upp á eldhúsið og piparkökur en ég er ekki frá því að kaffi og kanillyktin eigi vinninginn.  Úr hátölurunum hljómar ljúf sinfónía og því getur þetta varla verið betra, eða hvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú hefur greinilega átt eitt af þessu fullkomnu kvöldum sé ég og góður dagur í vændum !

Jónína Dúadóttir, 30.11.2007 kl. 09:22

2 Smámynd: Júdas

Ég finn það á mér að þetta verður svona í desember

Júdas, 1.12.2007 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 48614

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband