Björt og óvænt skuggaskil

     Þetta er ein af þessum vikum sem þakklæti gagntekur mig.  Þakka þetta og þakka hitt.  Þakka gott og þakka slæmt. Það virðist svo oft vera þannig að það slæma verður aðeins stökkpallur til þess góða.  Maður klöngrast yfir það stórgrýtt íklæddur von og þegar maður snýr sér við er þetta varla hindrun og maður skilur varla hvað það var sem vafðist fyrir manni.  Gleymum samt ekki að þakka því þakklætið gæti verið lykillinn að þessu og vanþakklætið því stærsta hindrunin og erfiðasti þröskuldurinn í lífi okkar.  Ekkert er sjálfsagt, ekkert er gefið, ekkert er ókeypis en sumt hefur verið verði keypt og því ber að þakka.

 

     Ég hef þakkað alla vikuna, meðal annars fyrir eldri kútinn minn.  Hvernig má það vera?  Hann gekk um og féll.  Á að þakka fyrir fallið?  Á að þakka fyrir mistökin?  Á að þakka fyrir brestina?  Á að þakka fyrir þolleysið?  Á að þakka fyrir ístöðuleysið?

Það gekk hratt fyrir sig- Það voru lítil mistök- Hann sá að sér-Hann snéri við- Hann lét vita- Hann slapp vel-Honum líður betur-Hann er bjartsýnn- Hann er reynslunni ríkari, Hann styrkist- Hann lærir—Það ber að þakka fyrir það-Það ber að þakka fyrir allt.

 

 

Ó, undur lífs, er á um skeið

að auðnast þeim, sem dauðans beið--

að finna gróa gras við il

og gleði í hjarta að vera til.

Hve björt og óvænt skuggaskil!

 

Ei sá ég fyrr þau skil svo skýr.

Mér skilst, hver lífsins gjöf er dýr

 --að mega fagna fleygri tíð

við fuglasöng í morgunhlíð

og tíbrá ljóss um loftin víð.

 

Og gamaltroðna gatan mín

í geislaljóma nýjum skín.

Ég lýt að blómi í lágum reit

og les þar tákn og fyrir heit

þess dags, er ekkert auga leit.

 

Ég svara, Drottinn, þökk sé þér!

Af þínu ljósi skugginn er

vor veröld öll, vort verk, vor þrá

að vinna þér til lofs sem má

þá stund, er fögur hverfur hjá.

 

Þorsteinn Vald

 

 

Þakka ykkur kæru vinir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dásamlegt - Þ.V. er bara þvílíkur meistari...  Ég þakka líka, vegna þess hvað ég hef alltaf verið heppin, þrátt fyrir allt mótlætið... það hefur bara gert mig sterkari.  Guð veri með ykkur - "kútaþrenningunni" og gefi ykkur styrk xxx

Edda (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 00:09

2 identicon

Sæll enn á ný. Mikið rétt. Maður á að þakka fyrir sig og það sem lífið gefur manni. Eins það sem það hefur uppá að bjóða. Því ef við þökkum ekki fyrir það í dag gæti það orðið of seint að þakka það.

Þakka þér fyrir þitt gefandi blogg það fær mann til að þakka svo margt og virða enn meira lífið sem maður á. Knús til þín "kútur"

Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 00:13

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta er svo innilega satt og rétt og fallegt hjá þér og eitt af því sem ég vil til dæmis þakka fyrir, er að þú skulir skrifa hérna

Jónína Dúadóttir, 17.4.2008 kl. 07:13

4 identicon

....fallegt og nærði sálina. Gangi ykkur vel. Múmínstelpan

múmínstelpan (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 09:47

5 Smámynd: Júdas

Takk elskurnar,  ég er líka þakklátur fyrir ykkur og þá bloggvini og alla sem enn eiga eftir að kommenta eða jafnvel bara lesa....

Júdas, 17.4.2008 kl. 10:19

6 Smámynd: Ein-stök

Fallega orðað og hittir beint í hjartastað:

Maður klöngrast yfir það stórgrýtt íklæddur von og þegar maður snýr sér við er þetta varla hindrun og maður skilur varla hvað það var sem vafðist fyrir manni.  Gleymum samt ekki að þakka því þakklætið gæti verið lykillinn að þessu og vanþakklætið því stærsta hindrunin og erfiðasti þröskuldurinn í lífi okkar. 

Ég þakka fyrir mig og er þakklát fyrir að hafa uppgötvað þig

Ein-stök, 17.4.2008 kl. 13:16

7 Smámynd: Guðný Bjarna

..það er frábært að lesa skrifin þín Júdas..þú gefur svo mörgu fólki jákvæðan innblástur  ..skrifar svo fallega um hversdagsleg viðfangsefni og glæðir þau tilfinningu sem auðveldlega skilar sér á blogginu þínu...

takk fyrir og kveðja í "kútaland"

Guðný Bjarna, 17.4.2008 kl. 19:55

8 Smámynd: Anna

Bara fallegt og satt -  óska ykkur alls hins besta.

Anna, 18.4.2008 kl. 08:53

9 identicon

Takk fyrir þetta Júdas!  Salka er sérstaklega þakklát fyrir ljóð Þorsteins sem þú valdir með þessari færslu.

Njóttu helgarinnar

Salka (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 17:21

10 Smámynd: Rebbý

ég eins og fleiri þakka þér fyrir að blogga því þetta er snilld að lesa og gaman að fá að fylgjast með ykkur kútunum hvort sem er hras eða hrós 

Rebbý, 18.4.2008 kl. 18:29

11 Smámynd: Ein-stök

Vona að ykkur kútafeðgum líði vel. Hugsa til ykkar og óska þess að þið eigið góða helgi

Ein-stök, 18.4.2008 kl. 22:22

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góða helgi kæri minn

Jónína Dúadóttir, 18.4.2008 kl. 22:51

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn gæskur

Jónína Dúadóttir, 21.4.2008 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 48613

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband