23.3.2015 | 18:10
Í höndum hennar verður hann leir
Dagarnir líða en líklega er Júdas farinn að tjá sig í hring. Sömu hugsanirnar sækja á hann aftur og aftur og þótt rödd hennar gleðji hann og fylli hann bjartsýni þarf lítið til að hjartað herpist saman og nístandi stingurinn taki við og hann rifji upp hlaupin á hæðunum þegar hann hrópaði nafn hennar og hélt að hann hefði misst hana. Þótt sársaukinn sé meiri er gleðin jafn lítil og hún var þegar leiðir skildu hér áður og Júdas tók eftir því að gleðiefni hversdagsins væru horfin og jafnvel regnið var hætt að vera svalandi. Nú þegar sólin skín og vorhugur sækir á menn virðist hausta hjá gömlum manni sem veit þó að vorið er ekki langt undan. Skyldi það vera óvissan sem ekki verður flúin eða hræðslan við að mistakast að raða saman þeim brotum sem liggja allt í kringum sálartetrið ? Júdas vill samt að Unga konan fái þann tíma sem hún þarf. Það læðast þó að honum vangaveltur um það hvort það eigi alltaf að vera hann sem láti undan, hann sem gefi eftir, hann sem hugsi um aðra, hann sem jafnvel lætur ávíta sig fyrir það eitt að vera ekki eins og einhver vill að hann sé. Geri ekkert, fari ekkert, vilji ekkert og njóti hversdagsleikans of mikið. Eitt má þó Júdas eiga. Hann Er. Sé einhver ekki sátur við það getur sá hinn sami farið
Júdas veit samt að í höndum hennar verður hann leir, en það gerir samt ekkert til því hún er góð, ljúf og yndisleg. Hún ilmar.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.