Hann vaknaði upp við vondan draum

Kona í blóma     Hann vaknaði upp við vondan draum, það var eitthvað öðruvísi en það hafði verið.  Hún var aldrei hjá honum.  Hún sem alltaf var að bíða eftir honum var allt í einu hætt að bíða, farin, horfin eða þurfti að fara, skreppa, kem seinna, kem seint, vilt þú svæfa kútinn?  Ekki vaka eftir mér.   Hann að skipuleggja fallega ferð til Frakklands,  ástarferð með kútinn, en hún hafði áhyggjur af öllu,  ferðin of löng, ferðin og seint, ferðin svona og ferðin hinsegin.  Hann hélt í vonina, dekraði meira, faðmaði hana kalda og breiddi yfir hana, ylurinn hlýtur að vaxa.  Einn hér og einn þar.  Hvar var konan sem tældi mig,  hvar var konan sem lagði snörurnar,  hvar var konan sem beið, hvar var konan sem gaf af sér.   Vikur og mánuðir,  kem seint,  þarf að skreppa,  efasemdir, brotið traust, dapurleiki.................Þetta stenst ekki.

   Lítið rör á forstofugólfinu.   Ég trúi þessu ekki!  Ég hendi henni út,  hún lofaði, hún hafði allt, gramsa í töskunni,  fleiri rör.  Nú hendi ég henni út.   Það var þó ekkert sagt.   Harður jaxlinn var linur sem smjör,  hvað á að gera.     Þú ert byrjuð aftur?  Af hverju?   Þú hefur allt, átt kút hvað ertu að spá?  Þetta gengur ekki svona?  Við ættum kannski að hvíla okkur?    Þetta er ekki rétt!  Ég veit ekki um hvað þú ert að tala.  Svo var tárfellt og grátið,  ég hætti þessu.Vikur, mánuður.   Þú ert ekki hætt?  Ég sé það á augunum.  Þú pakkar og ferð.   Í þessu hreiðri er þetta ekki til umræðu.  Grátið smá.  Ég fer.  Ég hélt að það vesta væri þá afstaðið en þá kom þruman.  „Ég veit ekki hvort ég elska þig“ ...........Hvort þú elskir mig?  Þá ferðu þín vegna!  Þú þarft að ná bata og finna þér einhvern til að elska.Löngu seinna,  „ég held ég elski þig“......................Heldur já, það er ekki nóg.   Þú veist það ekki og ég teysti þér ekki.  Þetta er búið og þú veist það.  Þekkirðu mig ekki betur en það.  Ég tek út sorgina rétti úr mér og byrja að brosa á ný.  Þú veist það. 

Unga konan er farin,  fyrr en ég átti vona á en gleðin og hamingjan láta bíða eftir sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 11.11.2007 kl. 21:59

2 Smámynd: Fiðrildi

Hún kemur.   Vildi að ég gæti gefið þér stóran knús . . . og tæki þá sjálf knús í leiðinni ;)  3/7 bloggvina þinna eru Akureyringar  ? ? ?

Ekki örvænta.  Á svona stundum áttu að setjast niður og leyfa huganum að dreyma.  Hugsaðu um allt það yndislega sem allt eins gæti gerst á morgun, hinn eða hinn.  Það óvænta er spennandi því það er eitthvað sem er nýtt.

Vonandi kemst þín fyrrverandi yfir sinn vanda.

Fiðrildi, 12.11.2007 kl. 00:43

3 Smámynd: Júdas

  þið eruð yndislegar.  Ég er núna fyrst að fatta þessa bloggvináttu og upplifi vellíðan og brosi þegar ég fæ falleg comment.   Ég var ekki svo dapur þegar ég skrifaði þetta í gær, ég var jú búinn að ákveða að gera þetta upp hérna og á nú eftir hinar konurnar í lífi mínu.  Ég byrjaði á því sem veldur mér hryggð í dag.  Vafalaust kemst hún yfir þennan vanda eða heldur honum niðri en uppljóstrunin um það að hún hefði ef til vill aldrei elskað mig særði mig mest. Jafnvel þótt reynt hefði verið að klóra yfir þetta seinna með líklega og kannski.  Ég ætla að bæta við mynd sem er vafalaust táknmynd fyrir þetta.     Hjarta og knús,  takk stelpur.

Júdas, 12.11.2007 kl. 07:44

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Myndin segir meira en mörg orð. Hættu nú að snúa þessu á hvolf drengur, hún elskaði þig víst, en bara á sinn hátt og svo má kannski setja spurningamerki við hvort hún hafi elskað þig nógu mikið. Ég hef bara aldrei fattað hvernig og með hverju er hægt að mæla ást, tommustokk eða vigt...  En ég þykist samt sjá það að hún elskar sjálfa sig alls ekki nógu mikið.... Og takk fyrir að segja að ég sé yndisleg, mér þykir vænt um það 

Jónína Dúadóttir, 12.11.2007 kl. 08:10

5 Smámynd: Fiðrildi

Gæti ekki verið Jónínu meira sammála.  Hvernig hver og einn elskar hverju sinni segir til um þroska viðkomandi.  Við getum ekki alltaf ætlast til að annar elski okkur á sama hátt og við elskum.

Að þér skuli sárna segir líklega til um að þér enn þyki vænt um viðkomandi meira en í meðallagi og það er það fallegasta.  Þá er það líklega ást án þess að vera eigingjörn . . . heyra í mér . . . ég sem aldrei skil þessa blessuðu ást sjálf

Fiðrildi, 12.11.2007 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband