Pabbi hlýddu mér bara

     Ég var að máta nýja peysu rétt áðan og kalla á unglingskútinn til að gefa mér einkunn.  Hann kemur labbandi fram og er ekki fyrr kominn í holið og búinn að berja pabba sinn augum en hann hristir höfuðið og segir:  „nei nei pabbi, ekki þetta“  svo renndi hann niður peysunni nánast svo sá í leggina  á mér eða hér um bil.   Bíddu, ég er ekki að fara í hana til að fara svo nánast úr henni aftur góði.  „Pabbi hlýddu mér bara, þetta á að vera svona“.  Ég er ekki heldur að fara á grímuball ef þú heldur það..........“það mætti halda að þú værir að fara á date eða eitthvað“ sagði hann og hleypti í brýrnar.  Finnst þér það líklegt vinur minn sagði gamli með hneykslunarsvip.   Tja, þú ert búinn að vera að æfa á fullu síðustu daga svo................ertu að fara á date?  Vinur,  finnst þér það líklegt,  hugsaðu þig um í 15 sekúndur.................... Nei pabbi, líklega ekki en þú ættir að gera það, svo var hann horfinn inn í herbergi og hækkaði í tónlistinni.   Meira að segja hann hefur ekki trú á mér í þessu blessaður drengurinn.Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fiðrildi

Létt fæði, æfingar, ljós . . . og nú ný peysa mátuð fyrir framan spegil . . . og álits óskað.  Ég segi nú bara eins og unglingurinn . . . það mætti halda að þú værir að fara á date eða eitthvað ?

Fiðrildi, 20.11.2007 kl. 20:03

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér þætti vænt um að geta fengið að hugsa að hann væri að fara á date fyrir spegilinn... svona til að byrja með

Jónína Dúadóttir, 20.11.2007 kl. 20:05

3 Smámynd: Júdas

Tja.....hva....það tók nú unglinginn ekki nema 15 sec að komast að því að það gat nú ekki verið og þó veit hann um flestar ferðir föður síns...... en aðeins  flestar.

Júdas, 20.11.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 48665

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband