24.11.2007 | 00:39
Greinilega orðinn þátttakandi
Enn einn dagurinn liðinn og þótt ég sé búinn að vera áhorfandi enn einn daginn var ég greinilega orðinn þátttakandi þegar lítill ljóshærður kútur hljóp á móti mér og upp um hálsinn á mér á leikskólanum seinnipartinn. Babbi, babbi, og svo rigndi yfir mig orðum og setningum sem ég skildi bara alls ekki. Hann bætir svo við sig orðunum í viku hverri að það tekur mig nokkra daga að komast til botns í þeim nýju sem urðu til vikuna á undan. Við sungum í bílnum krummavísur og fórum í allskonar orðaleiki eins og hvar er þessi og hvar er hinn og hermdum svo eftir húsdýrunum frá A til Ö. Þegar heim var komið og kúturinn búinn að faðma bróður sinn og slefa hann allan út eins og lítill hvolpur fleygðum við okkur á stofugólfið, kubbuðum og lékum okkur þótt þreyttir værum. Sá litli var alltaf að kalla á bróður sinn sem var nýkominn úr skóla og vinnu og var í óða önn að gæja sig upp til að geta farið á flandur með félögunum. Við litli vöktum lengi, en hann sofnaði nánast í fanginu á mér örþreyttur og ég bar hann inn í holu. Það er þetta sem gefur lífinu gildi og fyllir upp í flest tómarúm og er ég þakklátur fyrir það að eiga svona yndislegan kút og annan stærri til. Við blasir óskipulögð fríhelgi sem við ætlum að njóta á rólegum nótum en ég þreif allt húsið eftir vinnu á miðvikudag svo það er ekkert svoleiðis sem truflar okkur. Líklega verð ég þó að brjóta saman þvott um helgina eða auglýsa eftir einhverjum í það J. Ég keypti mér ljóðabók í morgun og ætla að glugga í hana í von um að sofna á ljóðrænum nótum og ekki ósennilegt að þeim eigi eftir að rigna yfir bloggsíðuna ljóðunum um helgina. Góða nótt kæru vinir.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
tilfinningar
-
tolliagustar
-
lindalea
-
kisabella
-
siggasin
-
saxi
-
svavaralfred
-
ein
-
gisgis
-
totally
-
mofi
-
vilborgo
-
rebby
-
scorpio
-
gurrihar
-
erla1001
-
stormsker
-
aslaugh
-
jensgud
-
eggmann
-
blossom
-
gretaulfs
-
limran
-
malacai
-
arabina
-
toshiki
-
gurkan
-
gelin
-
asarich
-
kona
-
neytendatalsmadur
-
myndamen
-
brandarar
-
little-miss-silly
-
rose
-
hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman hjá ykkur, það er gott
Jónína Dúadóttir, 24.11.2007 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.