Bloggtregða

     Ég finn að ég er haldinn enn einni bloggtregðunni sem lýsir sér þannig að mig langar til að blogga og er í mikilli þörf fyrir að hleypa út tilfinningum en kem engu niður.  Veit ekki hvort ég er glaður eða leiður, hamingjusamur eða óhamingjusamur, góður faðir eða slæmur faðir, jákvæður eða neikvæður.  Ég er enn einn daginn til hliðar við tilveruna, brosi út að eyrum og hleyp til þegar kútarnir mínir kalla á mig eða bregður fyrir en er samt tómur í hjartanu og bara Er.   Ég gæti líklega skrifað þetta með eintómum tilvísunum í eldri blogg því þetta er alltaf eins.  Sjá blogg 19 nóv kl 07:47 8.línu en síðan er góð skýring á hinu í bloggi 26. nóv kl 22:45 lína 5-10.......segi svona.

     Við litli kútur fórum í Laugar um hádegi og þótt við værum sitt í hvoru lagi höfðum við báðir óvenju gott af þess og ætlaði ég varla að geta náð honum úr Sprotalandi það var svo gaman.  Örlítil slagsmál við að klæða hann en það er eitthvað nýtt því ég er búinn að slást við hann í þau skipti síðan í gær sem ég hef þurft að klæða hann í föt.  Ég með þolinmæðisstillinguna í botni og hann með hrekkja og ólátastillinguna í botni líka.  Á ég að trúa því að hann verði líkur pabba sínum?

   Eftir æfingu fórum við í kringluna og þar röltum við í hringi horfandi á hamingjusamt fólk leiðast hönd í hönd, takandi saman ákvarðanir um alla hluti, hlægjandi, brosandi, leiðandi kúta og prinsessur eða keyrandi með þau í kerrum.  Eintóm hamingja, gleði og hlátrasköll.   Litli virtist skemmta sér ágætlega á meðan pabbi gamli í einhverskonar leiðslu horfði á úr nálægri fjarlægð.  Hvernig verða jólin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fiðrildi

 . . . veistu . . þetta er að ganga.  Kannast við þetta allt saman.   Sýkingin getur verið þrálát og erfið . . . en ónæmi finnst gegn henni á endanum.

Allt fólkið í pörum gerir mér líka stundum lífið leiðara en það er líka að missa af mörgu sem þú ert að upplifa.  Tíminn er að gera þig tilbúinn til þess ekki bara að vera í pari heldur einnig að njóta þess að vera í pari ;)

Þannig er ég farin að líta á það.

Fiðrildi, 24.11.2007 kl. 21:00

2 Smámynd: Júdas

Ég er hættur að vita nokkuð um þetta svei mér þá en það er klárt mál að ég á ekki að vera einn.  Því ætti ég að vera það þegar ég þrái annað? Finn ekki kaffiilm þegar ég vakna, eða bíð með uppáhellingu og dekkað borð eftir að hún vakni.......... spenntur.  Eftirvænting, blíðuhót, dálæti, kærleikur, ást..........

Júdas, 24.11.2007 kl. 21:48

3 Smámynd: Fiðrildi

já vissulega en það er ekki nóg að vakna upp á undan einhverri með kaffið tilbúið.  Kaffið þarf að vera handa hinni réttu  . . og sú sem vaknar þarf að fá kaffið frá þeim rétta.  Þess vegna er þessi yndislega pörun svona erfið

Fiðrildi, 25.11.2007 kl. 01:36

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan dag elsku dúllurnar mínar, þið eigið alla mína samúð.... í tvær mínútur... Getur verið að þið séuð að flækja þetta um of ? Eins og við vitum öll þá eru bæði góðar og slæmar hliðar á sambúðum og líka á einlífinu... Búin að prófa hvorutveggja og get ekki sagt að annað hafi verið betra en hitt, nema stundum kannski....  En mér finnst virkilega gaman að fylgjast með þessum pælingum

Jónína Dúadóttir, 25.11.2007 kl. 08:38

5 Smámynd: Júdas

Þið eruð ljúfar og vinátta ykkar verður ekki metin.  Ég fann fyrir hræðslu í gær, andleysi og finnst ég hafa brugðist öllum sem sem á mig stóluðu.  En nýr dagur gefur af sér nýjar vonir og morgnarnir eru mínir.

Júdas, 25.11.2007 kl. 10:12

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Líttu í kringum þig drengur, hverjir búa hjá þér og af hverju ?

Jónína Dúadóttir, 25.11.2007 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 48658

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband