Fyrstu brosin

     Þessi dagur ætlar vel af stað.  Það er mikil værð í loftinu og þegar ég kom fram í morgun leið mér vel þótt greinilegt væri að litla kútinn vantaði.  Þegar unglingskúturinn minn kom heim úr vinnunni í gærkveldi kom hann með pizzur og við eins og hungraðir úlfar rifum þær í okkur því hann hafði beðið mig um að bíða með matargerð þar til hann kæmi heim svo þetta var greinilega undirbúð.  Kaffi og ögn af súkkulaði leiddi mig inn í kvöldið, ég gluggaði í bækur og endaði á því að skoða video-fæla af litla kútnum og fékk það mig til að brosa allan hringinn og í raun sofnaði ég þarna í sófanum með tölvuna ofan á mér en kom mér inn í rúm eftir miðnætti.  Þarna voru myndir af fyrstu brosunum en ég man að ég fór heim úr vinnunni til að sjá það sem við töldum vera fyrstu brosin og einnig myndir af fyrstu máltíðinni sem hann borðaði sjálfur með gaffli og greinilegt að þar fór saman lagni og þrautseigja.  Faðmlög og kossar, föðurást og bróðurást, allur pakkinn.  Ég er ekki frá því að kökkur hafi komið í hálsinn og tár í augun ásamt mikilli gleði yfir þeim forréttindum að eignast og fá að fylgjast með þroska og vexti tveggja kúta síðustu 16 árin.   Það var hlýtt í kotinu þótt úti væri næðingur,  kaffiilmur og værð.............

Þetta er greinilega veganesti þessa dags en ég keyrði þann eldri í vinnuna í morgun og hélt mína leið út í blákaldan en yndislegan hversdagsleikann tilbúinn í nánast hvað sem er, jafnvel þótt vængbrotinn sé í viku og hjartsláttur minn slái ekki í takt við annan....... í óræðan tíma.

 

Kæru vinir, eigið góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 1.12.2007 kl. 18:05

2 Smámynd: Fiðrildi

Yndislegt :) . . . en mikið öfunda ég þig af hlýjunni.  Allir mínir ofnar eru kaldir þótt nýjir séu

Fiðrildi, 2.12.2007 kl. 02:39

3 Smámynd: Júdas

Það þarf eitthvað að kíkka á ofnana hjá þér, en er hjartað ekki hlýtt?   

Júdas, 2.12.2007 kl. 06:39

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan dag kæri bloggvinur

Jónína Dúadóttir, 2.12.2007 kl. 07:25

5 Smámynd: Júdas

Góðan daginn kæra

Júdas, 2.12.2007 kl. 07:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 48667

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband