11.1.2008 | 20:48
Enginn kútur
Þá er ég kominn heim í kotið...........einn. Það fer sko ekki framhjá mér því ég er búinn að ganga um gólf í hálftíma en er nú loksins sestur niður. Mamma kútsins sótti hann á leikskólann en hringdi hinsvegar í mig í dag og sagði mér að hún væri búin að vera ómöguleg og ekki getað unnið út af grátköstum og þess háttar í nokkra daga. Ég hvatti hana til að taka kútinn en láta mig strax vita ef hún teldi sig ekki geta sinnt honum og þá myndi ég sækja hann. Eins væri í góðu lagi að ég væri með hann á kvöldin og nóttunni en hún gæti sótt hann til mín á daginn. Þetta kemur í ljós en ég vil þótt ég sakni hans að hann fái notið samvista við móður sína til jafns við mig því það er honum fyrir bestu.
Unglingskúturinn æddi hérna inn áðan, stökk í 15 sekúndna sturtu, klæddi sig og á leiðinni út aftur hrópaði hann upp stigann, hvar er kúturinn? Þegar ég svaraði því heyrði ég ohh rétt áður en útidyrahurðinni var skellt og bíll félaganna spólaði af stað hérna fyrir utan.
Ég er að hugsa um að henda mér í sturtu og leggjast svo upp í sófa og lesa jafnvel blogg frekar en ekki. Ætli ég panti mér svo ekki bara mat?
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðan dag Hvað var svo í matinn ?
Jónína Dúadóttir, 12.1.2008 kl. 06:57
Góðan dag. Ég þótt latur vær hitaði mér upp frá deginum áður. Leit of vel út til að nýta það ekki.
Júdas, 12.1.2008 kl. 07:49
Hin eina og sanna hagsýna húsmóðir þarna á ferð
Jónína Dúadóttir, 12.1.2008 kl. 08:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.