Miðvikudags víkingur

Góðan dag kæru vinir. 

 

Ég ætla að koma á óvart í dag og vera glaðlegur og viðkunnanlegur.

Ég ætla að brosa framan í mengunarmömmur, segja jafnvel rosalega ertu falleg í dag.

Ég ætla að vera næs í vinnunni.

Ég ætla að hella upp á þunnt kaffi.

Ég ætla að dreifa sælgæti meðal trukkabílstjóra.  

Ég kannski sleppi þessu með sælgætið en samt..........

Ég ætla ekkert að flauta í umferðinni.

Ætla samt ekki að raka mig í dag því Júdas er miðvikudags-víkingur.  

 

 

Ég gekk fótbrotinn fimm tíma leið

nema fyrst, þennan spöl sem ég reið,

og stund sem ég beið

og stíg sem ég skreið

en ég stytti mér auðvitað leið.

Þors.Vald

Njótið dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fiðrildi

Hljómar nú bara eins og allir aðrir dagar hjá þér . . . nema kannski þetta með þunna kaffið

Fiðrildi, 2.4.2008 kl. 08:36

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Arna tók af mér akkúrat þá setningu, sem mér datt í hug þegar ég las þetta

Jónína Dúadóttir, 2.4.2008 kl. 08:43

3 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

humm.. ætlar þú að ljúga í dag Júdas?
Ég segi eins og bloggkonur að ofan... þú ert örugglega alltaf glaður og jákvæður - Bara aðrir í kringum þig sem hafa allt á hornum sér...

Linda Lea Bogadóttir, 2.4.2008 kl. 09:46

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Þegar að ég var að byrja á vinnumarkaðnum sem unglingur varð afgreiðsla í sjoppu fyrir valinu. Eftir fyrsta daginn kom ég heim og sagði mömmu sögu af dónalegu fólki. Mamma sagði að því dónalegra sem fólkið er því kurteisari átt þú að vera. Ég ætlaði nú ekki að verlauna frekjudollurnar með kurteisi! Héldu þau að þau væru eitthvað betri en ég?!?!

Auðvitað komst ég að því fljót að því að mamma besta hafði rétt fyrir sér

Eigðu Víkings glaðan dag

Sporðdrekinn, 2.4.2008 kl. 12:46

5 identicon

Hljómar allt vel en tek nú undir með þeim sem skrifa að ofan, varla kemur þú á óvart í dag, nema þetta með miðvikudags-skeggið... lýsir  algerri uppreisn

Njóttu kvöldsins!

Salka (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 17:14

6 identicon

..iss...ekki held ég að þetta séu eins og allir aðrir dagar hjá þér ..getur örugglega verið óttalegur fúlimúli ......en er það ekki líka nauðsynlegt? svona til að gleðast yfir gleðinni ..?...Múmínstelpan heillast af mjúku fjölbreyttu ljúfu og stórbrotnu landslagi .....vona að þér hafi tekist að "blekkja" einhverja með góðmennsku í dag...tíhí...

múmínstelpan (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 17:16

7 Smámynd: Júdas

Tekst manni ekki einu sinni að telja bloggvinum sínum trú um það sem múmínstelpan heldur um mig?

Jæja, set upp geislabaugana aftur,  þeir eru nefnilega tveir, einn fyrir hvort horn. 

Júdas, 2.4.2008 kl. 18:30

8 identicon

..ekki að sökum að spyrja ..mikið ljós sem fylgir Júdasi..á góðum dögum sem slæmum.. ........

múmínstelpan (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 19:57

9 Smámynd: Ein-stök

Ein-stök, 2.4.2008 kl. 22:29

10 Smámynd: Anna

Vona að dagurinn hafi reynst góður.  Fínn punktur hjá Sporðdrekanum, heilmikið til í þessu.

Anna, 2.4.2008 kl. 23:50

11 identicon

..jæja er mjúki maðurinnn týndur?..knús á gamla kallinn   tíhí

múmínstelpan (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 19:33

12 Smámynd: Ein-stök

Ég ætlaði einmitt að spyrja; hvar er Fimmtudagsvíkingurinn?

Ein-stök, 3.4.2008 kl. 19:39

13 identicon

Ha,ha,ha...    góður ..   "einn fyrir hvort horn"  ha, ha,ha...  Kær kv. E.

Edda (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 23:36

14 Smámynd: Júdas

Ætli maður þurfi ekki að fara að taka aðeins til í hornunum.......er að verða svo góður strákur!! 

Júdas, 5.4.2008 kl. 08:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 48657

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband