4.4.2008 | 00:01
Rósilmur regns
Ég datt niður á þetta ljóð áðan og fannst það eiga við. Þótt dagarnir undanfarið hafi verið ljúfir og fallegir með vorsól í aðalhlutverki var ég farinn að sakna rigningarinnar. Ég gladdist því í morgun þegar ég sá dropana á eldhúsglugganum og hugsaði með mér að þetta væri auðvitað veðrið sem ég þyrfti í dag til að ná fullkominni værð og ró. Og það varð.
Ósk mín er regn-
dropar sem detta á gras
dropar sem falla í mold
fræs, sem er falið þar
--geymt gróðurmold.
Ósk mín er vatns-
ilmur um dimma nótt,
seytl oní bikar blóms
áfengur ilmur vatns
--rósilmur regns.
Ósk mín er ljóss-
birta í morgunmund,
miðdegis bræddir snjó-
bólstrar úr mjúkri mjöll
--skýjafalls regn.
Ósk mín er lífs-
frjósemd framhald mergð
fjölgun úr smæð í stærð
ólagandi iðustraums
--óþrotlegt líf.
Sigríður Einars.
Góða nótt vinir.
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða nótt
Sporðdrekinn, 4.4.2008 kl. 02:09
Góðan dag Ég vil gjarnan fá rigningu í skiptum fyrir snjókomuna sem virðist vera með fasta áskrift hérna fyrir norðan....
Njóttu dagsins minn kæri
Jónína Dúadóttir, 4.4.2008 kl. 06:06
..frábært að sjá blogg..þurfti einmitt skammtinn minn fyrir daginn..sé að ljúflingurinn er mættur...eigðu góðan dag.
múmínstelpan (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 07:53
Oh leyfðu sólinni að skína - alla vega 5 heila daga í röð... ég þrái sól og hita.
Mér finnst samt rigningin góð - bara í hófi.
Góða helgi Júdas.
Linda Lea Bogadóttir, 4.4.2008 kl. 16:24
Fallegt ljóð. Góða helgi.
Ragga (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 16:37
Allt í lagi, ég get alveg gefið leyfi mitt fyrir sól og blíðu í nokkra daga og mér sýnist á reyndar á veðurspánni að svo verði. Ekki málið
Júdas, 4.4.2008 kl. 18:46
Merkilegt hvað það er til mikið af fallegum ljóðum sem ég hef aldrei séð (kannski því ég leita ekki upp ljóð hehe)
Mátt alveg fá smá rigningu það er svo gott að skreppa út í göngutúr að henni lokinni.
Rebbý, 4.4.2008 kl. 19:08
Fallegt þetta - í ljóðabók ?
Anna, 4.4.2008 kl. 23:55
Þakka þér Júdas
Linda Lea Bogadóttir, 5.4.2008 kl. 03:22
Án efa ljóð Júdasar ;) Fallegt
Fiðrildi, 7.4.2008 kl. 12:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.