11.4.2008 | 00:07
Hið nýja upphaf?
Á þeim tíma var eins og allt hefði snúist við, endirinn var orðinn að upphafi og það haustaði en vorið á næsta leiti. Hugsanir urðu dýpri og andardrátturinn hægari. Sársaukinn var samt ekki eins djúpur, hann tók eftir því, vonin var sterkari og trúin var meiri. Hann mundi að það gat rignt í sólskini og það átti kannski vel við. Hann gat svo sem tekið á móti nýju upphafi því hið fyrra hafði hert hann.
Hann hafði hringt í hann og beðið hann að hitta sig. Sagt að það yrði að gerast fljótlega því honum liði ekki vel. Þeir settust niður, horfðust í augu og þögðu. Er það aftur að gerast?" Sá eldri rauf þögnina................. "Já pabbi, fyrirgefðu"
Hið nýja upphaf og óséður endir. Fortíðin var orðin að nútíð!
Í þurru regni þrauta
þýtur fortíð þín.
Nálægðin við nútíðina
nístir þig.
En von þín vinur
vísar þér til framtíðar
og sæludaga samtíðar.
J.I
Um bloggið
Júdas
Eldri færslur
Færsluflokkar
Bloggvinir
- tilfinningar
- tolliagustar
- lindalea
- kisabella
- siggasin
- saxi
- svavaralfred
- ein
- gisgis
- totally
- mofi
- vilborgo
- rebby
- scorpio
- gurrihar
- erla1001
- stormsker
- aslaugh
- jensgud
- eggmann
- blossom
- gretaulfs
- limran
- malacai
- arabina
- toshiki
- gurkan
- gelin
- asarich
- kona
- neytendatalsmadur
- myndamen
- brandarar
- little-miss-silly
- rose
- hebron
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 48796
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vel gerður texti. Manni finnst maður þurfa að segja að vonina megi aldrei missa.
Anna, 11.4.2008 kl. 00:30
Flott skrifað hjá þér. Ég vona að þið vinnið úr þessu.
Sporðdrekinn, 11.4.2008 kl. 01:12
. . ég vona að ég sé að misskilja . . . Stundum er samt leiðin að hinu farsæla ætlað að vera erfið. Knús til allra kúta
Fiðrildi, 11.4.2008 kl. 11:26
Hugur minn er með þér.
Fortíðin mun ekki staldra lengi við því skynsemin er enn við völd - trúðu því.
Gangi ykkur vel
Linda Lea Bogadóttir, 11.4.2008 kl. 11:38
? ...þemað um "eplið og eikina" er gjarnan yrkisefni góðra skálda
farið vel með ykkur og ...sæludaga samtíðar
Guðný Bjarna, 11.4.2008 kl. 12:59
Ein-stök, 11.4.2008 kl. 14:24
Jónína Dúadóttir, 11.4.2008 kl. 15:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.