Þá gæti "alltaf" orðið að veruleika

 

Seint um kvöld rís nóttin upp úr gjánni

neðst í dalnum, tygjar sig til ferðar:

dustar myrkurpilsin, hnýtir dimma

hyrnu um axlir, kveinkar sér og felur

inni á barmi brunasára fingur

og stikar svo af stað

 

með gusti nokkrum, þrammar upp með ánni

til að inna þunga skyldu af höndum,

með djúpa skugga í augum, myrkar brúni

og hrafnsvart hár í síðum, þungum fléttum,

og dregur yfir vötn og kjarr og engi

dimman slóða,

 

ein og þögul, stefnir upp til fjalla,

þar sem loga sólskinsbál á tindum,

og kæfir eldinn hvern á fætur öðrum,

beygir sig og dýfir sviðnum höndum

á kaf í sindrið, réttir úr sér , eys

hnefafylli af stjörnum út  í geiminn.

 

Jón Dan

 

 

   Við sofnuðum allir kútarnir snemma í kvöld en sá gamli hrökk upp aftur enda ólokið nokkrum verkefnum.  Ég sit við eldhúsborðið og gat ekki stillt mig um að hella upp á eins og eina könnu og tók mér ljóðabók í hönd.  Hún virkar einmana nóttin, að minnsta kosti í þessu ljóði Jóns Dan og þannig er mér innanbrjóst þótt því fylgi ekki sá sársauki sem nísti mig inn að beini á dimmum liðnum vetri. 

     Nú er það bara einmanaleiki eða söknuður eftir einhverju sem ég vil þó bara njóta um stund, einmanaleikastund, eða hvað?  Orðið „alltaf“ er ekki trúverðugt og öllum slíkum væntingum ýtt til hliðar og framaf.  Orðið „stundum“ vekur von og litla drauma sem enn eru þó of fjarlægir til að njóta megi þeirra utan drauma.   En þegar Nóttin leggur svörtu hyrnunni fyrir þá gráu gætu dagur og nótt mæst með mjúka vanga væntinga og tíminn tekið völdin.  Þá gæti „alltaf“ orðið að veruleika!

 

Góða nótt!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Þetta er alveg magnað ljóð og góð pæling Júdas.  -  Það krefst stundum lagni að sigla einu segli í þungum vindi en það reynist léttara þegar vonin er manns haldgóða reipi. 

Anna, 29.4.2008 kl. 00:24

2 identicon

Ég tek undir með seinni setningu Önnu, en ljóðið er ekki að mínu skapi... enda er mér ekki vel við orðin alltaf og aldrei...  er víst efasemdar manneskja!!!

Ég veit að englarnir munu vaka yfir þér og gefa þér styrk fyrir daginn á morgun.

Guð gefi þér góða nótt.

Edda (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 01:08

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jamm minn kæri, svolítið grátt ljóð eiginlega.... en fín og frumleg pæling samt...

Njóttu dagsins vinur

Jónína Dúadóttir, 29.4.2008 kl. 08:14

4 Smámynd: Brattur

.... þetta er ljóð sem endar með stæl... "eys hnefafylli af stjörnum út í geiminn"... flott, bara flott...

.... svo er það spurningin; verður eilífðin alltaf til?

Brattur, 29.4.2008 kl. 21:30

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Sofðu rótt.

Sporðdrekinn, 30.4.2008 kl. 02:03

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn

Jónína Dúadóttir, 30.4.2008 kl. 05:58

7 Smámynd: Júdas

Tja, Brattur......það er spurning?  Alltaf skilur þú mann eftir í spurningum og vangaveltum, en þetta er flott já.

Góðan daginn vinir!

Júdas, 30.4.2008 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 48606

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband