Í dölum svefnsins

     Mig er farið að langa svo mikið í frí og þá er ég ekki að meina helgarfrí heldur frí í eina vikur eða tvær.  Ég á inni tvær vikur af sumarfríinu því sumarfríið mitt fór fyrir ofan garð og neðan en í byrjun árs hafði ég verið að skipuleggja á netinu svo flott sumarfrí.   Ég ætlaði að leigja mér húsbíl og aka um Frakkland, með kútinn og ungu konuna í von um að allt færi vel.   Unglingurinn var búinn að segja að hann vildi ekki fara með í svona hommalega húsbílaferð, hvað sem hann meinti með því.  Þessi ferð var aldrei farin og reyndar blundar hún alltaf í mér en varla fer ég í hana einn eða einn með kútinn.  Vetrarfrí er því kærkomið en í versta falli fer ég í borgarferð í nokkra daga.  Spurning um að bjóða rafmagnsmælaaflestrarkonunni með  til að gera þetta skemmtilegra.  Ég fer á hverju ári út í vinnutengdar ferðir vil auðvitað hafa þetta afslöppunarferð þar sem rölt verður um þreytulegar götur stórborgar, komið við á kaffihúsum og fylgst með mannlífinu.  Í svona vangaveltum finnst mér sárlega vanta einhverja fegurð og rifja þá upp margar ferðir þar sem falleg kona hefur verið með í för, skipulagt með mér, hlegið með mér, upplifað með mér, þagað með mér og horft með mér.  Fundið hönd strjúka á mér handlegginn og enda í lófa mínum, vinarleg stroka eftir bakinu sem endar í faðmlagi þar sem stutt er í algleymið.  Svona gæti þetta þó orðið lengi svo ef til vill ætti ég bara að fara einn og stika þessi stræti stórborganna nú eða setjast á bekk og bíða.

 

 

Á bláum skógum draumanna

í dölum svefnsins

þar skulum við mætast

meðan þú ert í burtu

og setjast undir krónurnar

sem krydda blæinn sætast.

 

Á bláum skógum draumanna

í dölum svefnsins

þar skulum við gleðjast

þangað til þú kemur.

Þá gleymir hvorugt ástinni

og engin þörf á að kveðjast.

 

Hannes Pét.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Auðvitað vill sá eldri ekkert fara með þér í svona hommalega húsbílaferð 

Þú hefur góðan smekk á ljóðum finnst mér, njóttu dagsins

Jónína Dúadóttir, 14.1.2008 kl. 05:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 48678

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband