Fæða barn með andlitinu

     Þetta var nú meiri dagurinn.   Ég er búinn að vera eins og borðtuska með tennur í dag og um leið og ég kom á skrifstofuna í morgun fékk ég að heyra það að ég liti ömurlega út.  Flott veganesti það en síðan versnaði það bara.  Dúndrandi höfuðverkur og bólgið andlit öðrumegin, verkir í augum ofl ofl.  Ég er reyndar búinn að vera með höfuðverk og í slappari kantinum frá því fyrir helgi en ekkert í líkingu við þetta.  Og það versnaði bara.  Ég er lítið fyrir verkjatöflur og fer í vinnu sama hvað á dynur en ég var svo viðþolslaus að ég var að spá í neyðarmóttökunni á tímabili, spauglaust, en ákvað svo að þrauka til fjögur eða þar til opnir tímar væru á heilsugæslunni.  Og..............þá bara lagaðist þetta nánast á mínútunni kl 15:15.  Ég var að spá í að hætta þá við lækninn en mætti samt.  Var skoðaður hátt og lágt,  samt ekki neðar en nafla og hann komst á þá skoðun að ég væri með sýkingu í einhverjum holuræflum í andlitinu.  Hljómar ekki merkilega en ég hef ekki fundið svona til í mörg ár.  Jæja, ég fékk sýklalyf og svo skrifaði hann upp á einhver sterkari verkjalyf og sagði mér að ef þetta skánaði ekki á einni viku skyldi ég koma aftur.  KOMA AFTUR?   Ég kem sko aftur ef ég fer að finna svona rosalega til aftur, það er alveg á hreinu.   Konur fullyrða gjarnan að karlmenn hafi svo lágan sársaukaþröskuld og miðað við það að fæða barn sé þetta og hitt ekki neitt og svo bla bla bla.........það er auðvelt að segja þetta þegar það kemur aldrei til að við fæðum börn en í dag leið mér eins og ég væri að fæða barn með andlitinu.  Það flögraði reynda að mér líka að ég væri kannski bara að fríkka,  væri að taka fegurðarkipp svona eins og vaxtarkippir hjá börnum en það væri of gott til að geta verið satt.  Nóg um það.

     Kosturinn við svona dag er sá eins og ég hef margoft sagt að við notum slæmu dagana til viðmiðunar við þá góðu og njótum þeirra góðu því miklu betur fyrir vikið.  Miða við það gæti verið að ég upplifi mína bestu full............ehhh Blush á morgun, en ég er ekki viss.

Best að fara í pilluboxin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fannst mér alveg ágætt hjá þér.. að fæða barn með andlitinu  Auðvitað er erfitt að mæla hvort sársaukaþröskuldur karlmanna sé almennt lægri en kvenna.. sérstaklega ef taka á mið af barnsfæðingum því eins og þú bendir réttilega á þá eiga karlmenn ekki eftir að ganga í gegnum það (nema í amerískum bíómyndum). Ég veit það aftur á móti að það þykir glettilega vont að fá svona sýkingu í andlitsholurnar og oft fjandanum erfiðara að losna við slíkt aftur. Þú skalt því gleypa þau lyf sem doktorinn gefur og sætta þig í leiðinni við að þú (eins og við hin) mátt missa þig í vinnu svona dag og dag..!!  

Óska þér svo góðs bata og stórkostlegrar full.. nei ég meina mun betri morgundags

Óla (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 23:35

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi greyskinnið, samúð  Og hugsaðu þér svo bara, hvað þú verður nú fallegur þegar þetta er búið og barnið fætt 

Óska þér góðs dags og góðs bata og læt afganginn liggja milli hluta

Jónína Dúadóttir, 15.1.2008 kl. 07:24

3 Smámynd: Júdas

Takk elskurnar, batinn var bara góður með aðstoð lyfja reyndar.  

Júdas, 15.1.2008 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 48678

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband