Komum að spegla drauma

     Það er fallegur dagur sem tekur á móti þegar draumum næturinnar líkur.  Óvenju miklar draumfarir síðustu tvær vikur og einnig í nótt.   Mér tekst líklega ekki að stöðva þær þótt ég hafi í gær bægt frá mér dagdraumum.  Það er nú líka oft þannig að við bægjum þeim frá þegar við stöndum okkur að því að hafa farið á flug svo það er yfirleitt eftir á sem við bægjum þeim frá en það er of seint.  Þetta verður líklega ekki dagur dagdrauma en dagur væntinga verður þetta því ég hlakka til kvöldsins, kútakvöldsins.   Eldri kúturinn á sér stóra drauma og miklar væntingar og í huga þess litla fara vafalaust að vakna slíkir draumar sem ekki endilega snerta frumþarfirnar.   Þeir eru einlægir í sínu eins og börn eru þangað til við fullorðna fólkið og umhverfið kennum þeim hið gagnstæða.  Það er dapurlegt og við ættum að leggja okkur fram við að viðhalda einlægninni með því að vera einlæg sjálf.

Leyfum þeim að dreyma og stöðvum ekki væntingar þeirra því það gæti speglast yfir í daglegt líf þeirra seinna meir.

 

Hindaraugun og lindaraugað

hvílast á -

hönd fellir sauma:

Komum að fleyta kvöldskini,

komum að spegla drauma!

 

Gangið glöð inn í hversdagsleikann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Njóttu dagsins og hafðu það gott

Jónína Dúadóttir, 21.1.2008 kl. 08:20

2 Smámynd: Fiðrildi

Fallegt og mikið rétt.  Það fer eitthvað verulega spennandi að gerast hjá þér með hækkandi sól . . . bíddu bara

Fiðrildi, 21.1.2008 kl. 13:51

3 Smámynd: Júdas

Hmmm,  hljómar eins og hótun  en einhvernvegin á ég ekkert von á því.  Biðin hefur verið löng hjá þér Arna og ég óttast mest að hún verði löng hjá mér.  Ég er farinn að finna fyrir fælni og varfærni sem var ekki.  Hræðslan við að særa einhvern er líka svon sterk.

Júdas, 21.1.2008 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband