Leitin að vetrarblóminu

 

Mig dreymdi þig á þorra,

ég þekkti mig

við þennan klett,

og hér fann ég þig,

vetrarblóm!

 

Ó, gagnsæja lifrauða ljósdjúp!

Hún skín

og lýkst upp í brjósti mér

krónan þín,

vetrarblóm!

 

Föla unga vor

í fannanna bráð,

fullur himinn

af ást og náð.

Vetrarblóm.

 

Þorst.Vald

 

     Hann fer fallegur af stað þessi dagur.   Kyrrð yfir og í útvarpinu tekur á móti mér þegar ég kveiki á því  „Ég hef allt líf mitt, leitað að þér“ .  Kaffiilmur fyllir eldhúsið og værð gagntekur mig.  Ég sakna kútsins og varð varla svefnsamt í nótt sökum draumfara sem tengdust honum.  Ég var alltaf að vakna til að sinna honum en holan var tóm.  Aðeins lítill koddi og lítil sæng. 

    Í gærkveldi var unglingskúturinn óvenju heimakær og við lágum saman í sófanum í klukkutíma eða svo, þar til vinir og kunningjar urðu værðinni eftirsóknarverðari.  Eftir sat ég í sófanum og lærði. 

     Leitin að vetrarblóminu er hafin á ný þrátt fyrir kvöldið sem það var afskrifað í döprum huga en nýr eldmóður virðist risinn úr viðjum eymdar og  einmanaleika.  Það mun þó ekki taka hug minn allan, aðeins vaka og bíða eftir fallegu augnagoti eða rafrænum skilaboðum.  Fingurfléttingar og handabakastefnumót bíða vafalaust en ég mun njóta ilmsins þar sem ég finn hann.

 

Njótið dagsins kæru vinir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

drakk kaffibollan og las bloggið...það var notaleg samvera ..eigðu góðan dag.

 kv. múmínstelpan

ps..að þegja saman getur verið skemmtilegri félagsskapur en margt annað ....tala nú ekki um þögn með "fingrafléttuívafi"....

múmínstelpan (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 10:41

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Notalegt að lesa þetta

Jónína Dúadóttir, 10.2.2008 kl. 11:52

3 identicon

Alltaf gott að lesa skrifin þín :) litlir kútar eru fallegir, unglingskútar eru fallegir og ég er ekki frá því að kútapabbinn sé fallegur líka. Hann er allavega með fallegt hjartalag :) Sendi þér fiðrildi og fjólubláa strauma í tilefni sunnudagsins :)

Nilla (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 14:20

4 identicon

SVONA JÁ - þetta er rétti hugsanagangurinn.    Eigðu notalegt kvöld. Kær kv. E.

Edda (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 17:01

5 identicon

..ætlaði svo að drekka kvöldbollann með þer líka......en geri það þá bara ein í þögninni góðu ...

múmínstelpan (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 19:23

6 identicon

Hugljúf og notaleg lýsing - þrátt fyrir kútasöknuðinn. Takk fyrir mig  

P.s. Ég drakk rauðvín með þessum lestri og hann er ekkert síðri svoleiðis en með kaffibollanum

Óla Maja (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 20:37

7 identicon

Fallegt ljóð.

Ragga (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 21:25

8 Smámynd: Sigga

Vetrarblómin er erfitt að finna, en þegar maður finnur þau, þá er maður heppinn. Afskaplega heppinn og glaður.

Ekki vera einmana, njóttu þess frekar að þurfa ekki að standa í veseninu sem fylgir því að vera í sambandi.

Sigga, 10.2.2008 kl. 22:26

9 Smámynd: Júdas

Ég fann engin vetrarblóm í dag en ég lét hugann reika og hugsaði til þeirra. 

Rauðvín er ekki slæmt og ásamt kaffinu eðaldrykkur.  Ég held mig samt við kaffið svona yfir hádaginn

Þið njótið bloggsins, ég nýt commentanna.  Takk fyrir þau.  Eru mér mikils virði.

Júdas, 11.2.2008 kl. 01:02

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðn dag kæri minn, hvernig heilsar dagurinn þér þarna í sunnlenska vetrarríkinu ?

Jónína Dúadóttir, 11.2.2008 kl. 05:55

11 Smámynd: Júdas

Já það er fallegt Magna.  Ég er reyndar að gefast upp á að finna vetrarblómin og spurning hvort vorlaukarnir gefi ekki bjartari vonir.

Júdas, 16.2.2008 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 48679

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband