Ég var og ég er

     Mér nægir að líta út um gluggann og sjá göturnar blautar og hjarta mitt fyllist gleði.  Vonin um rigningu gagntekur mig eins og yfirfærð þrá eða þráhyggja sem hefur villst einhversstaðar  í sálartetrinu.  Við kútar áttum yndislega helgi og fórum reyndar ekkert út úr húsi í gær því værðin var svo mikil.  Enduðum í baði kl 11 í gærkveldi áður en við fórum í rúmið.  Unglingskúturinn nennti auðvitað ekki þessari leti og var horfinn á vit vina sinna og drauma strax og hann vaknaði kl 15 eins og þreyttum hormónabolta sæmir.  Sólarhringnum er reglulega snúið við og umferðin um herbergisdyrnar hjá honum minnir stundum á umferðarmiðstöð svo margir eru vinirnir og kunningjarnir.

 

    Við tekur ljúf vinnuvika og kútavika sem gefur lífinu þá fyllingu sem þarf til að fullkomin værð haldist hjá gömlum þreyttum pabba.  Talsverðar annir eru þó framundan, nýtt erfitt verkefni í vinnunni sem þarf að vinna vel á borði áður en því er hleypt af stokkunum og lokaáfangi í náminu um miðja viku og ekki laust við smá titring undirniðri þótt best sé að mæta því af fullkominni yfirvegun frekar en með yfirlestri og óðagoti.

 

  Ég Óska ykkur ljúfs dags og vona að þið Óskið ykkur þessa sama.

 

 

Ég er óskin,

aleiga hins snauða,

bænin heilaga,

hjartarauða,

umvafin fegurð

og ást í lífi og dauða.

 

Ég var

og ég er.

Kynslóð kemur

og kynslóð fer.

Ungir og gamlir

unna mér.

 

Ég er óskin,

ákallið hljóða,

bæn hins veika

og vegamóða:

friður á jörðu

og frelsi allra þjóða.

 

Gestur Guðfinnsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég Óska þess að allar góðar Óskir rætist

Jónína Dúadóttir, 18.2.2008 kl. 08:17

2 identicon

..skottaðist á eftir ungviðinu um allar hæðir borgarbókasafnsins ;) ..eigðu góða vinnuviku. gaman að líta við.

múmínstelpan (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 11:52

3 Smámynd: Fiðrildi

Góða kútaviku . . . en er ekki kominn tími á að þú uppljóstrir leyndarmáli þínu með rigningunni.

Kveðja Arna

Fiðrildi, 19.2.2008 kl. 15:07

4 Smámynd: Júdas

Þær gætu ræst Jónína mín! eða rætast með því móti að við beygjum okkur í nægjusemi framhjá hindrunum og löngunum og bókum það svo bara á debet í  "Óskir sem rættust"

 Aaaaa, Múmínstelpa, varst þú konan sem hljópst út um allt............?!

 Þetta með regnið já........ég er bara svo klikkaður Arna! Hef leitað að rigningarhringingu í símann minn en ekki fundið hana.   Líklega þarf ég að blogga aðeins um hana í góðu tómi

Júdas, 19.2.2008 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 48647

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband