Spurning um að koma úr bloggskápnum?

     Þá erum við feðgar komnir á klakann sem reyndar var ekki svo mikill klaki eftir allt saman.  Veðrið þarna úti lék svo sem ekkert við okkur en síðustu dagarnir voru svo heitir að við þráðum svalann aftur.  Það var gott að opna útidyrahurðina og rölta inn í hreiðrið sem hafði ekkert breyst frá því við vorum hérna síðast.  Það var þrifið áður en við fórum og ekkert 10 cm ryklag yfir öllu eða ló á stærð við meðalstóra heimilisketti eins og ég hafði reiknað með eftir svo langa ferð. Kúturinn kastaði sér í rúmið sitt og stormaði svo fram í eldhús þar sem sá gamli var kominn með á könnuna og stakk upp á að við pöntuðum okkur ÍSLENSKA pizzu.  „Er ekki í lagi með þig.  Þú mátt panta vinur en ég ætla bara að fá mér kaffi.“

    Daginn eftir náði ég svo í litla kútinn á leikskólann eftir vinnu og ég neita því ekki að það var svolítill beygur í mér eftir svona langa fjarveru frá honum.  Mér var búið að detta það í hug að láta Ungu konuna sækja hann og koma með hann heim en hún gat það ekki svo þetta varð bara að vera svona.  Ég var ákveðinn í að gefa honum góðan tíma á útisvæðinu til að venjast „aðstæðum“ en sá litli þurfti sko ekkert svoleiðis kjaftæði.  Hann hrópaði pabbi, upp yfir sig eins og hann gerir alltaf þegar ég næ í hann en hljóp svo í burtu eins og hann gerir líka svo oft og vill láta elta sig og síðan kom skoðunarferð um völlinn eins og ég væri túristi.  Þegar út í bíl var komið var það brói sem hann vildi hitta og við stormuðum heim til sameiningar þriggja gullfallegra kúta á misjöfnum aldri.  Lífið er yndislegt.

 

     Ég átti nú von á því að bloggvinir mínir myndu í hópum koma heim á lóð á meðan ég var úti, mála grindverkið, klippa runna og slá lóðina en það rættist ekki.  Skildi það haldast í hendur við það að vera nafnlaus bloggari?  Ég veit það ekki en grunar það samt.  Spurning um að koma úr bloggskápnum?  Nei, það væri ólíklegt því kæmi ég úr honum færi einlægnin upp í efriskáp og úr skúffuni kæmi coolið sem gæti verið talsvert frábrugðið, að minnsta kosti fljótt á litið.  Ég hef hinsvegar ákveðið að setja inn nokkrar myndir úr ferðinni og vona að ég hafi tíma til þess í vikunni.  Síðan er ég byrjaður að lesa bloggfærslur bloggvina langt aftur í tímann því svona vanræksla er vart líðandi. 

     Hef farið víða í dag og sporin leyna sér ekki.  Hey, ég er þessi á stuttermabolnum með sólgleraugun!

 

Njótið einhvers.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Velkominn heim minn kæri og fyrirgefðu að ég skyldi ekki mála grindverkið og slá lóðina og og .... Ég hef mér til afsökunar að ég er afskaplega sérhlífin, einstaklega eigingjörn og með afbrigðum húðlöt... eða þá bara að ég hef ekki glóru um hvar þú átt heimaGaman að skjá þig aftur á íslenskri grund, þá þarf ég ekki að öfunda þig eins mikið

Jónína Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 13:51

2 identicon

Velkominn heim :)

Ragga (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 13:57

3 Smámynd: Rebbý

velkomin heim aftur og til lukku með sameining þrímenninganna á ný en endilega vertu nafnlaus áfram .. við elskum einlægnina hjá þér

Rebbý, 30.6.2008 kl. 18:34

4 Smámynd: Ein-stök

Velkominn heim og takk fyrir allar ferðalýsingarnar. Yndisleg lýsing af endurfundum ykkar feðga.

Ein-stök, 30.6.2008 kl. 20:12

5 identicon

Velkomnir heim!

alva (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 21:12

6 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Segi það bara aftur... velkomnir heim feðgar.
Já ég hefði sko notað sumarfríið mitt í að mála hjá þér grindverkið hehe

Linda Lea Bogadóttir, 30.6.2008 kl. 21:46

7 identicon

Indisleg ferðasaga.

En það er jú alltaf gott að koma heim.  Hefði sko alveg getað slett á grindverkið hjá þér en garðurinn er meira svona ekki mitt nema að klippa runnana.

Knús og klemm úr sveitinni.

Ókunnuga konan (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 00:15

8 Smámynd: Júdas

Takk, kæru vinir.  Maður heldur alltaf að allt breytist á meðan maður er ekki á staðnum en það er eins og allt hafi staðið í stað.  Meira að segja hversdagsleikinn og einmanaleikinn voru sjálfum sér líkir.

Er ekki kominn tími á rigningu? 

Júdas, 1.7.2008 kl. 07:58

9 Smámynd: Anna

Já þú ert kominn heim, vertu velkominn.  Vonandi að hugsanir um hversdags-og einmanaleika víki fyrir ilmi af fallegu íslensku sumri með mildum úða.  Megi þér líða sem best Júdas.

Anna, 1.7.2008 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 48608

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband