Þær rekast á, nálægðir og fjarlægðir

     Þetta gæti orðið dagur uppgjörs þótt ekkert í umhverfinu bendi til þess.  Heimilið er þögult og þrátt fyrir áhrif huldukonu á einfaldan hversdagsleikann eru skúrir á köflum.  Við eldri kútur þurfum að setjast niður í dag eða kvöld og ræða saman.  Hjá honum skiptast líka á skin og skúrir og þótt engin merki séu um það í fasi hans eða framkomu gagnvart öðrum hefur gamli maðurinn svipt hulunni af slæmri spá með því einu að horfa til himins í stað þess að treysta á langtímaspár hans sjálfs.   Við breytum ekki veðrinu en getum með vakandi huga og vökulum augum horft til himins og búið okkur undir breytingar og jafnvel notið regnsins við réttar aðstæður.  Hann verður alltaf í þessum viðjum en nú í annað skipti bregðumst við hratt við þessari fjandsamlegu fíkn.

 

Það skín þó sól og værðarvon hvílir yfir.  Hjarta mitt segir að sigur sé unninn þótt hindranir séu framundan.  Ég læt hugann reika og rifja upp þá gömlu tíma þegar lítill kútur fylgdi mér eftir hvert fótmál og gat aðeins treyst á mig.  Ég þrái þessar gömlu fjarlægðir því þá gat ég haldið í taumana og er ekki frá því að eitthvað af fallegum fljóðum hafi verið í nálægðinni.  Það rekast því á í huga mínum nálægðir og fjarlægðir og eftir smá umhugsun veit ég ekki hvort ég þrái meira. 

 Kannski er huldukonan betur geymd í fjarlægðinni og líklega er Júdas þar best geymdur líka. 

 

 

Bagalegt, og þó

hvað ég þrái þær oft

hinar gömlu fjarlægðir:

geislandi vegalengdir

milli staðanna

milli atburðanna

milli óskarinnar og veruleikans.

 

Ó skæra djúp

þar sem draumarnir áttu heima.

 Hannes Pét.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Bjarna

vááá Júdas þú ert frábær penni... væntumþykjan á lífinu með kútunum þínum skín í gegn í þessari færslu, en jafnframt þráin eftir óuppfylltum draumum... en er það ekki einmitt það sem þarf í tilveruna? .. "að eiga drauma"..

..gangi þér vel

Guðný Bjarna, 26.7.2008 kl. 10:45

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gangi ykkur vel elsku kútarnir

Jónína Dúadóttir, 26.7.2008 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 48606

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband