Regnið sem áður var svalandi

     Nú vil ég að þú farir að koma Unga kona.  Ég þarf þig, ég þarf ilminn, ég þarf faðmlögin, ég þarf hlátur þinn og ég þarf grát þinn.   Ég þarf að finna fyrir þörf þinni, fyrir sál þinni, fyrir líkama þínum.  Finna fyrir því að þú þurfir á Júdasi að halda.  Komdu heim. 

Júdas þarf að fara að hugsa um sjálfan sig, hugsa um fjölskylduna, hugsa um kútinn og kútínuna.  Það fer að líða að síðasta útkalli.  Flótti frá sjálfri sér, hræðsla við að takast á við drauga fortíðar og löngun til að verða betri þarf að eiga sér stað í faðmi fjölskyldunnar.   Júdas gerir sér betur og betur grein fyrir því að gleðin verður að fá inngöngu .   Regnið sem áður var svo svalandi veldur sársauka í dag sem verðu að linna.  Komdu heim.

Nú þarf Júdas bara þor til að segja orðin.

Það var eins og Unga konan hafi vitað þessar hugsanir gamla mannsins, eirðarleysi hans og óöryggi, bráðlæti hans og eigingirni.  „Ég elska þig svo heitt en þú verður að vera þolinmóður við mig“ .   „Ég veit að þú vilt fá mig heim og ég vil það líka en ég vil vera heil“ .  Líklega er þráðurinn á milli þeirra sterkari en svo að hann verði slitinn í sundur og tilgangur með hverjum degi í þessari baráttu. 

     Glímunni við draugana var ekki lokið en margir þeirra þeirra orðið undir í baráttu góðs og ills.  Þar er Unga konan sterk og hefur alltaf leitað til almættisins þegar sálartetrið bugast.  Í dag er þetta þó öðruvísi því hver dagur er undir leiðsögn Hans og það veit Júdas vel.  Hann þekkir hann líka.


Mjúkur maður er ömurlegur

     Ég held ég hætti þessu.  Júdas virðist farinn að skrifa í hringi og veltir því fyrir sér hvort í þessu felist einhver huggun og hvort réttast væri að þegja.  Hann fer í taugaranar á sjálfum sér og gamla manninum á bak við hann.  Sjálfsvorkunn, örvænting, reiði og óöryggi eru tilfinningar sem Júdasi líkar ekki og að þær taki yfir sjálfsöryggi, jafnvægi, yfirvegun og rólyndi geta riðið honum að fullu.  Allt út af ungri konu.  Er það þessi virði?  Júdas er það að auki karlmaður og ætti líklega ekki að bera vandræði sín á borð fyrir aðra.  Þótt það sé undir fölsku flaggi.  Mjúkur maður er ömurlegur og ætti ekki að ala upp börn, sér í lagi stráka.  Nú er hann sjálfum sér líkur.  Júdas er hrokafullur og hortugur og lætur ekki vaða yfir sig.  Enginn getur hengt hann á þann sem hann er nema hann viti það!  Þeir eru bæði líkir og ólíkir.  

Hvað fær maður svo sem út úr þessu ?  og ef ég man rétt eru fallegar góðar konur úti um allt.  Júdas man strax eftir nokkrum og ef hann legði sig fram yrði tilfinningunum komið í annan farveg á stuttum tíma og lífsins notið á ný með fallegu tilhugalífi.  Er það ekki bara málið ?  Hljómar vel en……..

Of einfalt til að geta verið satt, of einfalt til að geta gengið upp.


Í höndum hennar verður hann leir

    Dagarnir líða en líklega er Júdas farinn að tjá sig í hring.  Sömu hugsanirnar sækja á hann aftur og aftur og þótt rödd hennar gleðji hann og fylli hann bjartsýni þarf lítið til að hjartað herpist  saman og nístandi stingurinn taki við og hann rifji upp hlaupin á hæðunum þegar hann hrópaði nafn hennar og hélt að hann hefði misst hana.   Þótt sársaukinn sé meiri er gleðin jafn lítil og hún var þegar leiðir skildu hér áður og Júdas tók eftir því að gleðiefni hversdagsins væru horfin og jafnvel regnið var hætt að vera svalandi.  Nú þegar sólin skín og vorhugur sækir á menn virðist hausta hjá gömlum manni sem veit þó að vorið er ekki langt undan.  Skyldi það vera óvissan sem ekki verður flúin eða hræðslan við að mistakast að raða saman þeim brotum sem liggja allt í kringum sálartetrið ? Júdas vill samt að Unga konan fái þann tíma sem hún þarf.   Það læðast þó að honum vangaveltur um það hvort það eigi alltaf að vera hann sem láti undan, hann sem gefi eftir, hann sem hugsi um aðra, hann sem jafnvel lætur ávíta sig fyrir það eitt að vera ekki eins og einhver vill að hann sé.  Geri ekkert, fari ekkert, vilji ekkert  og njóti hversdagsleikans of mikið. Eitt má þó Júdas eiga.  Hann Er.  Sé einhver ekki sátur við það getur sá hinn sami farið…………

 

Júdas veit samt að í höndum hennar verður hann leir, en það gerir samt ekkert til því hún er góð, ljúf og yndisleg.  Hún ilmar.


Tími uppbyggingar er framundan

     Loksins sofnaði Júdas og svaf af sér kvöldið og nóttina til morguns.  Áhyggjur af því sem var og yrði voru í höndum huggarans og auðmýkt og traust voru allt sem þurfti.  Júdas gerir sér samt grein fyrir því að þessu er ef til vill aldrei lokið og hvort tími huggunar sé kominn veit hann ekki en alveg ljóst að tími uppbyggingar er framundan, tími faðmlaga og tími sannleikans. Steinum hefur verið kastað og nú skulum við tína þá saman.  Við skulum tala og þegja ekki, við skulum elskast og stoppa ekki, við skulum byggja upp og láta ekkert stoppa okkur.

 

Sannleikurinn sem fellst í orðum Predikarans eru orðin Júdasi ljúf í eyrum.  Svona er einfaldleikinn, svona er hversdagsleikinn, svona er líf Júdasar og Ungu konunnar.

 

Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir sinn tíma,

að gróðursetja hefir sinn tíma og að rífa það upp,

sem gróðursett hefir verið, hefir sinn tíma,

að deyða hefir sinn tíma og að lækna hefir sinn tíma,

að rífa niður hefir sinn tíma

og að byggja upp hefir sinn tíma,

að gráta hefir sinn tíma og að hlæja hefir sinn tíma,

að kveina hefir sinn tíma og að dansa hefir sinn tíma,

að kasta steinum hefir sinn tíma

og að tína saman steina hefir sinn tíma,

að faðmast hefir sinn tíma

 

Júdas velti þessu líka fyrir sér í nóvember 2007,

 http://judas.blog.is/blog/judas/entry/361347

Hring eftir hring!


Þú munt faðma fortíð þína

     Loksins hefur Júdas sannfærst í hjarta sínu.  Unga konan elskar hann og það breytist aldrei. Loforð almættisins skulu alltaf standast og við bætum engu þar við. 

     Hún grét þegar hún kvaddi kútinn og kútínuna og þau líka, síðustu tárin þurrkaði gamli maðurinn af þeim sofandi. „Hvenær kemurðu aftur „  var spurt mörgum sinnum og ég sá það í augum Ungu konunnar að viljinn til að koma strax var að taka völdin.  „Ég kem fljótlega“ sagði hún og löngunin til að koma aftur sem hún sjálf, ný og betri mamma, endurfædd Ung kona, sú sem var, sú sem faðmar, sú sem ilmar, fyllti sálar Júdas. 

Við elskum þig mamma eins og þú ert!  Ég elska þig Unga kona eins og þú ert!

 

Guð mun gefa þér það æðruleysi sem þú þarf til að faðma fortíð þína

og sætta þig við það sem þú ekki getur breytt.

Kjarkinn hefur hann gefið þér nú þegar til að breyta því sem þú getur breytt

og þar hef ég alltaf dáðst að þér og engu haldið leyndu.

Vitið til að greina þar á milli er sem pálmi í höndum þínum af Guði gefinn

og ilmur þinn  er allsstaðar.


Hann sofnaði þegar hann átti að vaka !

     Er núna komið að tíma fyrirgefningar? Tíma auðmýktar og nýs upphafs?  Tíma uppgjörs og tíma afhjúpunar?  Tíma sannleikans?   Er hægt að fyrirgefa þeirri sem kom og hvarf?  Er hægt að ætlast til einhvers af þeirri sem var í raun aldrei til en kom þó og var?   Þeirri sem skildi eftir sig slóð sem enginn skildi og enginn vildi feta?  Er hægt að búast við einhverju öðru en því sem var áður en öllu var snúið við og upp varð niður og niður varð upp ?  Er hægt að búast við öðru en endurtekningum á fyrri misgjörðum? Er það augljósa ekki sú ástæða sem stingur Júdas meira en allt annað? 

     Hann sofnað á verðinum.   Hann sofnaði þegar hann átti að vaka.  Hann leit undan þegar hann átti að horfa,  hann leit upp þegar hann átti að horfa niður.  Hann sagði já þegar hann átti að segja nei.  Hann gleymdi þegar hann átti að muna.  Hann brást þegar hann átti að standa sterkur. 

     Var Unga konan ekki sú sem hann treysti?  Sú sem treysti á dómgreind hans, sem treysti á styrk hans, sem leitaði ásjár hans, sem sótti í yl hans?  Voru svik hans þá ekki meiri en svik hennar?  Hann var jú hann á meðan hún var ekki með.  Hann var á meðan hún hvarf.  Hann vissi og sá en horfði bara á……..  Þau töldu sig ætluð hvort fyrir annað en voru svo ef til vill bara fyrir einhverja aðra.

Allt hefur sinn tíma.

Er Júdas ekki bara sjálfum sér líkur og ber nafnið býsna vel.


Viltu bíða eftir mér eins og ég beið eftir þér ?

     Það fór eins og Júdas sagði og greinilegt að í huga hans takast á undarleg öfl örvæntingar, vonar og þrár.  Ást hans til hennar virðist stundum taka völdin og skynsemin sem ætla mætti að væri svo augljós látin fjúka fyrir ljúfum löngunum sem róa hugann og sefa andann rétt eins og fallegt regn á hlýjum sumarmorgni.  Unga konan hringdi og það var örvænting í röddinni.  Örvænting sem Júdas var að bíða eftir, örvænting sem hann hélt að væri ekki lengur til staðar,  ilmur sem Júdas þráði.   „ Ég elska þig en er svo hrædd um að missa þig.“  „Viltu bíða eftir mér eins og ég beið eftir þér og gafst ekki upp. Manstu það ? „

Auðvitað man Júdas eftir því og þótt Unga konan hafi einnig þá verið leidd í burtu af draugum fortíðar kom hún til baka og lagði snörur fyrir þrjóskan gamlan Júdas og gafst aldrei upp. 

Getur verið að þessu ljúki?  Júdas verður að skilja þetta og leita til hans sem skilninginn gefur, eða hvað ?


Væri lausnin sú að loka

     Úti  gnauðar vindurinn og Júdas rétt eins og alltaf var vaknaður inn í myrkrið.  Dagrenning þó á næsta leyti en í huganum var bardagi ljóss og myrkurs, dags og nætur.  Var kannski myrkur eins, ljós fyrir öðrum og húmið hjá henni dagrenning hjá þeim sem henni unna.  Var þetta kannski lykillinn að því að Júdasi líði betur, að sleppa og svæfa hugsanir, að ganga bara hjá og horfa ekki á.  Átti þetta að vera sú áminning sem almættið gefur, sjáðu gamli, þetta valdir þú og getur enn horfið í sjálfan þig og þína drauma.  Ungar konur sem velja að horfa ekki bara á heldur kasta sér í viðjar fortíðar sinnar þótt litlir ilmir þeirra svífi fyrir vitum þeirra biðja ekki um björgun. Þær vilja frið í myrkrinu.  Vilji þeirra er staðfastur og ákvarðanir fyrir lífstíð teknar á þeirri stundu.  Af hverju ætti gamall maður að snúa við og rétta fram hendurnar, hlaupa um hæðir hrópandi nafn hennar eins og ástsjúkur ung-Júdas.   Af hverju ætti hver dagur að vera bið þegar biðin er svona löng og nístandi.  Ódýr orð á einmana stundum í fjarveru þurfa ekki að vera þau orð sem sögð eru í nálægð þegar augun renna yfir gamlan mann með lokuð augun, gamlan Júdas sem þarf ekki að eiga hana skilið til eilífðar.  Drottinn gaf og Drottinn tók.  Getur verið að skynsemin segi henni að snúa til baka í bili og hlusta á raddir annarra, þeirra sem telja sig vita og telja sig geta sett sig í spor almættisins.  Getur verið að í neyðinni sé ekki hlustað á fjarlægt hjarta heldur teiknuð upp mynd sem virðist ljúf og kunnugleg og gæti gengið um stund.  Þangað til næst!  Vill Júdas eða vill hann ekki.  Væri lausnin sú að loka.  Loka á allt.  Kveðja ilminn og leita nýrra.  Eða bara leita einskis.

En Júdas veit að áður en sólin er sest verður hann aftur orðinn hennar í huga og í verki og tilbúinn að hlaupa um hæðirnar á ný ef hann eða hún þyrfti. 

Ilmur hennar í dag mun fylgja Júdasi inn í nóttina.


Hvort vill og hvort ætlar eða ætla þau bæði ?

       Það var í dag sem fjölskyldubrot Júdasar litu Ungu konuna augum.  Fögnuður í litlum hjörtum og  sundurstungnu hjarta Júdasar var allsráðandi.  Unga konan brosti með öllu andlitinu og greinilegt að hún var aftur orðin hans.  „Ég elska þig“ sagði hún greinilega frá hjartanu og gamli maðurinn trúði því  og vissi það.  Loforðið um að múrarnir yrðu endurreistir og vígin sett upp á ný sem aldrei fyrr virðast ætla að standa en djúpt í sálartetri Júdasar virðast enn vera dreggjar biturleika og vantrúar.  Ef til vill er þetta bara of gott til að geta verið satt.  Átti hann hana skilið, gamall, þrjóskur og þreyttur?   Átti hann hana skilið gamall maður með gráa fortíð?  Átti hann hana skilið svona fallega, ljúfa og ilmandi? 

Var það ekki við þessar aðstæður fyrir mörgum árum sem leiðir skildu og Júdasarbloggið varð til.  Unga konan hvarf í eigin viðjar og koma aftur með nýjar áherslur og óviss áform sem reyndust þá vera hennar stærstu mistök.  En hún gafst ekki upp fyrr en hún hafði að nýju bugað hann og smeygt sér aftur inn í hjarta hans.  Hún var snjöll þá og fylgdi eigin hjarta og nýjum krafti og lét ekkert stoppa sig.  Ekki einu sinni tímann.  Hún trúið því þá að hann yrði hennar á ný og það varð. 

Í dag er þetta eins, eða líkt en samt svo óþekkt og sársaukafullt.  Var hann hún eða hún hann eða voru þau bara þau sjálf.  Hvort vill og hvort ætlar eða ætla þau bæði og vilja þau bæði.   Guð einn veit það en ekki Júdas.


Verður hún sú sem birtist og brást ?

     Hún kallaði og hann kom.  Hann kom strax.  Júdas gat ekki annað og þótt tilefnið væri ekki gleðilegt var gleði Júdasar ósvikin.  Að láta sig hverfa í norðankalda yljaði honum og yfir sorginni gladdist hann,  í söknuðinum naut hann nærveru hennar og ilmurinn var hans.  Þegar þau kvöddust var hann glaður en þegar heim var komið tóku efasemdir völdin. 

Hvar er hún og hvert fer hún?  Verður hún hans eða verður hún einskis?  Verður hún unga konan sem hann þekkti?  Verður hún unga konan sem ilmar eða verður hún sú sem birtist og tók völdin.  Verður hún sú sem birtist og brást eða verður hún sú sem var og gaf. 

Júdas vill svör sem hann fær ekki en almættið?  En almættið hvað?  Var þetta alltaf ljóst?  Júdas þurfti bara að muna að það sem var,  það er og það verður.  Júdas hefur reyndar líka sinn djöful að draga sem þó virðist léttbær og gæti hann tekið hluta af djöflum Ungu konunnar væri hann tilbúinn til þess.  Lausnin er að muna og gleyma ekki. Biðja og þreytast ekki.  Vera tilbúinn þegar kallið kemur.

Hún er mín!

Júdas gæti fundið ró.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 48581

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband