Land drauma þinna

     Auðvitað sprakk ég.  Pakkaði saman á 10 mínútum, kvaddi og æddi með kútinn burtu úr Þorpinu.  Hvílíkur léttir bara af því að keyra og keyra og keyra.  Það er eitthvað að mér það er alveg ljóst.   Unglingurinn minn hringdi reyndar og sagðist sakna okkar svo mikið og hvort við færum ekki að koma.  Það er svo furðulegt að vera einn hérna sagði hann.  Ég sakna ykkar.   Skömmu síðar vorum við á leiðinni til hans.  Það verður langt þangað til Þorpið verður heimsótt næst.

 

     Það var gott að sofna í sófanum í gærkveldi með kútnum og yndislegt að vakna heima í morgun.  Þetta hlýtur að vera einhverskonar fötlun að vilja bara vera heima og  að það skuli setja allt á annan endann hjá manni tilfinningalega ef eitthvað bregður út af.   Við tekur lærdómur og kúr með kútnum og unglingskútnum sem gat ekki leynt gleði sinni þegar hann tók á móti okkur snemma í ærkveldi.  Það er greinilegt að hann er ennþá pabbakútur og pabbi hans líklega kútapabbi svo mikið er víst.  En nú ætla ég að segja ykkur eitt konur.  Í þorpinu rakst ég á myndarlega konu sem var með mér í skóla þar í denn og átti hreinlega í erfiðleikum með að „hrista“ hana af mér svo mikil var aðdáunin.  „Þú ert alltaf svo sætur“ ,  „þú lítur svo vel út“  og „þú ert svo myndarlegur“ voru orð sem ég heyrði í orðaflaumnum svo þið skuluð ekki vera með einhverjar ranghugmyndir um gamlan miðaldra mann sem skýlir sér á bak við nafnleynd hér í bloggheimum og hana nú.

     Jæja, það er best að setja á könnuna og vita hvort hún kemur í dag, vonin mín.

 

 

Land drauma þinna er hinum megin við vatnið.

Langa, sólríka bernskudaga,

starðirðu þangað

uns augu þín urðu þreytt

og sólin var gengin til viðar.

 

Í svefnrofunum

sagðistu einhvern tíma ætla þangað.

 

Skemmsta leiðin

 liggur kringum vatnið

en þú veist ekki

í hvora áttina þú átt að ganga.

 

Nú er vatnið á ís

en farðu varlega

farðu varlega

því ísinn er veikur.

 

Hjörtur Pálsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bara eins og ég hefði gert það, stungið af það er að segja Ef maður þarf ekki að láta sér líða illa, þá á maður alls ekki að gera það ! Eigðu góðan dag sæti, myndarlegi, vel útlítandi, alls ekki miðaldra maður Og trúðu bara konunni, hún þurfti ekkert að segja þetta.....

Jónína Dúadóttir, 2.3.2008 kl. 08:53

2 Smámynd: Júdas

Þú ert yndisleg Jónína mín.  Þetta snýst alltaf um það að vera í sátt við sjálfan sig og líðan sína því kútarnir eru fljótir að finna það þegar það er ekki í lagi.   Eigðu góðan dag.

Júdas, 2.3.2008 kl. 11:05

3 identicon

He, he .. ranghugmyndir hvað ??  Ég er nokkuð viss um að engin okkar hefur haft ranghugmyndir um þig...... bara þú sjálfur  og ég er viss um að Jónína talar fyrir hönd okkar flestra   

Vertu ekkert að vaða yfir ísilagt vatnið - ákveddu bara aðrahvora áttina kringum það ... og stattu við þá ákvörðun    Kær kv. E.

Edda (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 02:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 48668

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband