Verum þakklát í dag

     Rigningin er loksins komin!   Þvílík sæla og þvílík lausn á öllu.  Þessari þráhyggju er best lýst í því sem við sáum úti í dag.   Allur kuldinn víkur og ófærð hverfur á nokkrum tímum.  Allt verður hreint og þögult.  Umhverfishljóð dofna og aðeins heyrist í regninu á gluggum og þökum.  Því fylgir værð.

     Unga konan sótti kútinn á leikskólann í gær og ætlaði að vera með honum  í sólarhring eða svo úr því að ég fór með hann út á land á fimmtudag.  Annars eru vikuskiptin á Föstudögum en við eigum bæði svo erfitt með að sjá af honum.  Hann er ljósgeislinn í lífi okkar þriggja en þetta snýst um val og ég valdi fyrir okkur öll.  Gærkveldið snérist því um lærdóm, lestur og þögn.

 Framundan er blautur hversdagsleiki kryddaður með regni sem gæti glætt hann fegurð og værð. 

 Verum þakklát í dag!

 

Himinn, jörð og haf!

Hvílíkan bústað

Guð okkur gaf.

 

Gullið, grænt og blátt.

Ókannanlega djúpt,

óendalega vítt,

ómælanlega hátt.

 

Fagurker

fullt á barma

unað hins ljúfa lífs.

 

Drekk, mannsbarn,

í djúpri lotning

af hinum bjarta bikar.

 

Bragi Sigurj.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan dag kæri vin, þú ert svo fundvís á falleg ljóð Af því að ég bý sem stendur ennþá uppi í fjalli, það lagast nú samt fljótlega, þá er slydda hjá mér en rignir niðri í mannabyggðum Njóttu dagsins sæll og glaður og hættu nú að láta eins og þú hafir aldrei séð þegar ég er að rukka um nýtt ljóð eftir Júdas sjálfan !!!

Jónína Dúadóttir, 5.3.2008 kl. 08:28

2 Smámynd: Fiðrildi

Já ég naut regnsins í gær og komst í vorfeelinginn

Fiðrildi, 5.3.2008 kl. 11:52

3 identicon

..rigning er rómó..

múmínstelpan (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 14:35

4 Smámynd: Júdas

Þetta stóð ekki lengi en ljúft var það.  Ljóð já, það er svo mikill leirburður Jónína að það er skelfilegt en ómögulegt að segja þó.

Arna þú ert soldið fyrir rigningu er það ekki?

Rómó jú, man varla hvað það er og þyrfti klárlega í endurhæfingu.

Júdas, 6.3.2008 kl. 07:51

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Má ég dæma um hvað mér finnst vera leirburður  Þú ert nefniega ekki hlutlaus þar kæri minn Njóttu dagsins, í rigningu eða ekki....

Jónína Dúadóttir, 6.3.2008 kl. 07:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 48670

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband