Tær og blár einfaldleiki

 

 

Þegar blár hreinleiki

fjarlægðarinnar

hafði þvegið nálægðina

úr andliti þínu

þráði ég að hjúfra mig

að fjarlægð þinni

geta ekki snert þig

geta ekki átt þig

aðeins varðveitt þig

í tærum og bláum einfaldleika.

 

Birgir Sig.

 

     Hjá sumum er þetta eini möguleikinn í stöðunni.   Eini möguleikinn í stöðu sem þeir komu sér sjálfir í.  Jafnvel besti möguleikinn af aðeins einum möguleika.  Er þá nokkuð annað að gera en að sætta sig við það?  Fjarlægðin verður jafnvel enn fjarlægri þegar tíminn líður og þegar litið er tilbaka er þar jafnvel ekkert að sjá nema óskýr reikul spor og löngu byrjað að fenna yfir þau.  Það hefur líka ekkert upp á sig að líta til baka, nóg að hugsa þangað og draga af því lærdóm.

Góða nótt

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki málið bara að það er sannleikskorn í því að .. "fjarlægðin gerir fjöllin blá, dalina djúpa og mennina mikla"??

Svo er líka e-t sannleikskorn í "að grasið er alltaf grænna......."  er það ekki?

Bara smá hugleiðingar með þínum. Hjartans bestu kveðjur, E.

Edda (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 03:29

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já, falleg hugleiðing.... svolítið sorgleg samt.... Það sem hefur gerst áður gerist aldrei aftur, það gerist eitthvað annað í staðinn... og örugglega miklu betra. Ég óska þess allavega handa þér inn í daginn

Jónína Dúadóttir, 7.3.2008 kl. 06:05

3 identicon

...hæ

múmínstelpan (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 19:33

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan dag drengur minn

Jónína Dúadóttir, 8.3.2008 kl. 10:18

5 Smámynd: Júdas

Góðan daginn!  Ljóðið fannst mér svo mikill sannleikur en fallegir morgnar taka alltaf við af myrkum kvöldum og svefninn ævinlega kærkominn 

Júdas, 8.3.2008 kl. 10:42

6 identicon

Ég er alveg heilluð af þessu ljóði og verð að eigna þér heiðurinn af endurvakningu ljóðaunnandans í mér.  Takk fyrir mig

Salka (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 16:39

7 Smámynd: Júdas

Ég er ánægður með það Salka.......njóttu!

Júdas, 8.3.2008 kl. 18:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 48669

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband