Standi ker okkar tóm

 

Hví skyldum við eiga

nægir ekki að elska?

 

eða grunar okkur

ástin sé munaður

er harðnar í ári

standi ker okkar tóm

auki okkur aðeins þorsta

þá sé gott að eiga

hvort annað er óslökkvandi

einmanaleikinn

fyllir tóm kerin.

 

Birgir Sigurðsson

 

 

Vorhugur fyllti mann í dag.  Sólin, hlýindin, fólk að leiðast.  Það er eins og allt fyllist af kærustupörum þegar sólin lætur sjá sig.  Hvar heldur þetta ástfangna fólk sig þess á milli?  Hvar er það í rigningu og roki, snjókomu og skafrenningi?  Gætu þetta verið hillingar, tálsýnir eða bara leikrit.  Ég held að ástin sé stórlega ofmetin og einmanaleikinn stórlega vanmetinn, eða var það öfugt?  Þetta er bara eins og í denn, ég hef engan til að leika við og er því farinn............... að  sofa.

Góða nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Bjarna

...í ljóðamáli er svo margt sem leynist milli línanna... getur verið að það sem Júdas bíður eftir sé falið þar..??  

en  Júdas er snillingur að setja fram fallegan texta og hann hlýtur að eiga margar góðar ljóðabækur.. góða nótt

Guðný Bjarna, 10.3.2008 kl. 00:19

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Oft eru þetta nú bara leikrit vinur sæll, ástin dugar oftast ekki til að fara saman út að labba í vondu veðri..... Og kannski hljóma ég bitur, held samt ég sé það ekki en, ástin er oft mjög ofmetin og einmanaleikinn vanmetinn, það er mikið rétt hjá þér Njóttu góðs dags, vonandi í góðu veðri

Jónína Dúadóttir, 10.3.2008 kl. 06:30

3 Smámynd: Júdas

Ef þú ert bitur Jónína mín er ég á heljarþröm en ég held að við séum með fæturna á jörðinni. 

Takk fyrir þessi orð Gbljósa.  Líklega þurfum við að túlka okkar eigið líf og meta öll þau gildi sem styðja við okkur á langri leið.  Ég held stundum að ég mæti því daglega sem ég er að bíða eftir en velji það að snúa mér ekki við og leggi jafnvel á flótta.

 Njótið dagsins og sólarinnar sem greinilega ætlar að heilla okkur í dag.

Júdas, 10.3.2008 kl. 08:32

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sólin heillar mig alltaf, en það er samt auðveldara að láta heillast af henni ef ég sé hana..... En, þú mátt eiga minn sólarskammt í dag

Jónína Dúadóttir, 10.3.2008 kl. 08:35

5 Smámynd: Fiðrildi

Í rigningu og roki kúra pörin innandyra og hafa það náðugt þar.  Ég hef upplifað bæði einmanaleika og ást og tel ekki einmanaleikann vanmetinn . . . hann er þungur.  Stundum er gott að vera einn en þá er maður ekki einmana heldur bara einn.  Ástin og samveran er heldur ekki ofmetin en margir kunna ekki að njóta hennar.  Opnaðu þig fyrir ástinni Júdas . . eins og blóm á sumardegi og flugurnar flykkjast að þér í leit að blómasafa.  Vertu jákvæður og þú finnur ástina fyrr en þig grunar og verður þá líka tilbúinn til að þekkja hana, njóta, næra og ala. 

Fiðrildi, 10.3.2008 kl. 12:23

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Vá hvað þetta var flott og satt hjá henni Örnu

Jónína Dúadóttir, 10.3.2008 kl. 12:28

7 identicon

Er alveg innilega sammála henni Örnu. Var einmitt að hugsa um þetta með að pörin séu innandyra að kúra saman þegar veðrið er leiðinlegt.. það myndi ég gera  Finnst líka góð þessi skilgreining.. einmanaleiki er allt annað en einvera. Einverunnar getur maður notið en ef - af einhverjum ástæðum - maður er hættur að njóta hennar þá tekur einmanaleikinn við. Mín reynsla er sú að hann er sár  Svo gleymist oft að hægt er að vera einmana innan um fullt af fólki - alveg eins og að fólk sem oft er eitt er ekkert frekar vorkunn. Jæja.. held að ég sé búin að fá mér eins og einu rauðvínsglasi of mikið  

Óla Maja (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 22:02

8 Smámynd: Júdas

Mér þykir vænt um þessar vangaveltur sem spunnust út af frekar litlum texta.  Góðir punktar og góð hvatning Arna mín, takk fyrir hana.  Einnig þetta með einmanaleikann og einveruna sem þú talar um Óla.  Maður nýtur einverunnar en ekki einmanaleikans það er ljóst.

Ég fann það samt í dag óvenju sterkt að ég er enn óhæfur til að taka á móti ást og hræðist nánd.  Ég myndi særa viðkomandi.

Júdas, 10.3.2008 kl. 22:53

9 identicon

Mér sýnist þú líka njóta lífsins eins og það er hjá þér í dag. Þú talar um að þú saknir þess að hafa ekki þessa samveru og nánd við aðra manneskju en þar sem sá söknuður tengist ekki ákveðinni manneskju, heldur meira tilfinningunni sem slíkri, þá held ég að það sé alveg rétt hjá þér að þú sért ekki tilbúinn í slíkt í dag. Ég ætla ekki að nota orðið óhæfur því þú ert svo sannarlega "hæfur" þar sem þú hefur - að mínu mati - mikla tilfinningalega dýpt og elskar bæði heitt og innilega (sbr. kútana þína). En.. ég hélt að ég væri hætt að rausa í kvöld?  

Óla Maja (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 23:00

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þið eruð alveg eðal

Jónína Dúadóttir, 10.3.2008 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 48668

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband