Ilmur og værð hjá kútum

     Það er kominn jólahugur í mig og eldri kútinn.  Mér varð það hins vegar á í fyrradag að segja litla kútnum að nú færu jólin að koma og þá fengi hann jólapakka.  Allt það kvöld og allan daginn í gær var hann að spyrja eftir þessum pakka og ég reikna með því að það verði eins í dag.  Biðin verður greinilega erfiðust fyrir þennan þriggja ára kút sem veit ekkert um jólin en veit sko hvað pakki er!

     Það var gott að koma fram í morgun rólegur og fullur vellíðunar rétt eins og í „gamla“ daga.  Vita hvað ég á og hvað ég má.  Þakka Honum fyrir nýjan dag og endurnýjaða værð.  Það sofa allir nema Júdas gamli og stefnan strax sett á kaffiskápinn.  Þarna var síðasti kaffipakkinn af grýlukanil kaffinu sem ég er vanur að kaupa nokkra pakka af í desember ár hvert svo ég eigi þá út árið til notkunar á sérstökum stundum.  Þetta kaffi er bara framleitt í desember og til fram í janúar enda jólalegra kaffi varla til.  Kaffiilmurinn liðast um eldhúsið holið og mætir fallegum ilmi fegurðar sem áður tilheyrði skuggum fortíðar en tilheyrir nú fallegri tilveru kútafeðganna.    Vafalaust horfir Hann niður og brosir skilningsríkur og fer yfir það í huganum hversu oft hann hafi þurft að blása lífi í þennan þreytta svikula mann sem á það til að henda frá sér því sem hann unnir mest til að halda í stoltið en elta svo eigin skugga og spor hring eftir hring.  „Best að láta hann ná sér núna“ , hafur hann vafalaust  hugsað og brosað svo föðurlega og fylgst með.  Á einni helgi breyttist allt, þegar Júdas loksins fylgdi hjartanu.

     En kaffið er gott og eitt af því sem breytist seint.  Ein af þessum fáu nautnum sem ég hef ekki séð ástæðu til að losa mig við.  Ég hef alltaf haft þessa tilhneigingu að ef eitthvað nær tökum á mér og mér finnst ég verða háður því þá losa ég mig við það.  Vímuefni eru ekki í þessum hópi því þesskonar fíknir hafa aldrei herjað á mig.  Súkkulaði hinsvegar er í þessum flokki og þess vegna hefur sælgæti ekki farið inn fyrir varir mínar frá því í apríl og óvíst um framhaldið.

Allt hefur sinn tíma og ljóst að dagar einmanaleika og depurðar eru liðnir.  Við kútar erum glaðir og bjartsýnir og ég rifja upp pistil sem ég skrifaði 10.11. 2007.

„Ef maður hugsar of mikið um suma hluti er eins og allt fari á flug hjá manni og fleiri spurningar vakna en leitað var svara við í upphafi.  Gætum við verið að  leita svaranna aðeins of langt frá okkur og gætu svörin hugsanlega verið við tærnar á okkur?  Getur verið að sannleikurinn sé svo einfaldur að hann verði ekki skilinn eða er hann eins og jafna sem ekki gengur upp?  Ég er sjálfur í leit að einhverju og treysti því að það villist ekki einhver inn á síðuna sem haldi af fyrrihlutanum að ég sé með svörin því það er langur vegur frá því.  Mér skilst hinsvegar að allir hlutir hafi sinn tíma og því teysti ég á  að sorg og söknuður,  vanlíðan og depurð fari eða hverfi en geri mér það þó ljóst að það geti skollið á mér aftur síðar. Ekkert undir himninum er komið til að vera, allt virðist vera hverfult, en þetta er þó ljóst:   Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma, að gróðursetja hefur sinn tíma og að rífa upp það sem gróðursett hefur verið, hefur sinn tíma, að deyða hefur sinn tíma og að lækna hefur sinn tíma, að rífa niður hefur sinn tíma og að byggja upp hefur sinn tíma, að gráta hefur sinn tíma og að hlæja hefur sinn tíma, að kveina hefur sinn tíma og að dansa hefur sinn tíma, að kasta steinum hefur sinn tíma og að tína saman steina hefur sinn tíma, að faðmast hefur sinn tíma og að halda sér frá faðmlögum hefur sinn tíma, að leita hefur sinn tíma og að týna hefur sinn tíma, að geyma hefur sinn tíma og að fleygja hefur sinn tíma, að rífa sundur hefur sinn tíma og að sauma saman hefur sinn tíma, að þegja hefur sinn tíma og að tala hefur sinn tíma, að elska hefur sinn tíma og að hata hefur sinn tíma, ófriður hefur sinn tíma og friður hefur sinn tíma........................Ég hlakka til vinnáttunnar, værðarinnar og kærleikans.  Ég hlakka til angans,  augnatillitanna og glettninnar.  Ég hlakka til löngunarinnar, þrárinnar og væntinganna.  Ég hlakka til stoltsins, glæsileikans og djörfungarinnar.  Ég hlakka til kossanna, strokanna og blíðuhótanna.  Ég hlakka til þessa dags að ég finn hana eða hún mig.“  

 

 

Ég náði í svalan skugga trjánna

og fann þar ljúfa lind.

 Spegilmynd gamals manns

birtist mér svo kunnugleg.

 Ég leit til baka og  

að í yfirgefnum sporum mínum

hafði blómstrað.

Og svo kom regnið!

JI

   Njótið dagsins. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Góð lesning.

Anna, 8.11.2008 kl. 11:10

2 identicon

Loksins :-)

María (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 19:41

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 8.11.2008 kl. 19:57

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér líður svo vel eftir að hafa lesið þettaEins og alltaf langar mig að geta skifað eitthvað gáfulegt eða þó ekki væri nema vitnað í eitthvað gáfulegt... en það er nú fátt um fína í þeirri deildinni hjá mér eins og venjulegaÞví segi ég bara, mikið innilega er ég ánægð yfir því hvað þér líður vel núna minn kæri, svona á þetta að vera

Jónína Dúadóttir, 9.11.2008 kl. 06:38

5 Smámynd: Guðný Bjarna

sammála Jónínu.... það var gott að lesa þennan pistil  svo kærkomið að finna að það er til fólk þarna úti sem er að spá í mannleg gildi, þar sem samvera við sína nánustu er í forgrunni og leitin eftir hamingjunni er háð á tilfinningasviðinu í umgengni við aðrar manneskjur og líka sinn innri mann...

takk Júdasog góðar stundir

Guðný Bjarna, 9.11.2008 kl. 17:22

6 Smámynd: JEG

Kveðja úr sveitinni. 

JEG, 9.11.2008 kl. 18:21

7 Smámynd: Bullukolla

Bara yndislegt . . . og ég hlakka líka til.  Það er gott að hlakka til og þess vegna líður mér vel.

Bullukolla, 11.11.2008 kl. 16:23

8 identicon

Bingó! ;)

múmínstelpan (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júdas

Höfundur

Júdas
Júdas

"Einn sem hefur allt en bíður þó eftir einhverju sem hann hefur ekki" Þetta á víst ekki við í dag.  Í dag væri nær að segja. Einn sem hefur allt en þarf að muna, viðhalda og sýna þakklæti. judas_@msn.com

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 48632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...0808_722078
  • Tröppur
  • Unga konan
  • Bekkurinn okkar
  • Lítill drengur með blóm

http://www.projectplaylist.com/myspace/20002550

Dire Straits - Romeo And Juliet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband